Ég ákvað að hætta að vera „tossi“ í fullu starfi

Guðríður Torfadóttir er mjög spennt fyrir haustinu.
Guðríður Torfadóttir er mjög spennt fyrir haustinu.

Guðríður Erla Torfadóttir eigandi Yama heilsuræktar er að láta gamlan draum verða að veruleika; að opna sína eigin heilsurækt. 

„Ég ákvað að láta gamlan draum verða að veruleika og opna mína eigin heilsurækt sem byggist á minni eigin sýn á heilbrigði líkama og sálar. Yama heilsurækt verður opnuð fljótlega og það hefur verið í mörg horn að líta. Standsetning á húsnæði og svo að taka við miklum fjölda skráninga hefur tekið mestan tíma. Ég raða fólki saman í litla hópa til að tryggja árangur og ánægju. Kerfið hefur verið í þróun í nokkurn tíma og fjöldi fólks sem hefur náð árangri nú þegar. Allir hlakka til að mæta í næsta tíma. Á sama tíma er ég að bæta við Hot&Strong-æfingakerfið sem konur hafa aðgang að á mjög sanngjörnu verði í fjarþjálfun.“

Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig?

„Að vera við góða heilsu er matsatriði og að mínu mati er það auðvitað góð heilsa að geta sofið vel, geta hreyft sig og teygt í allar áttir, en góð heilsa er líka andleg. Ef mér líður vel, og finn að ég er tengd sjálfri mér og streitan er í lágmarki, þá finnst mér ég vera heilsuhraust. Það er samt bara svo erfitt þegar streitan er mikil, en því miður eru langflestir að glíma við það ástand og ég þar á meðal. Það er ýmislegt sem ég kann til að draga úr streitu, með jóga, æfingum, göngutúrum og með því að tryggja góðan svefn, sem tekst nú því miður ekki alltaf.“

Hvernig mataræði ertu á sjálf?

„Ég er ekki á neinu sérstöku mataræði og orðin leið á því að fylgja einhverju sérstöku. Stundum tek ég föstu og borða frá 12-19, þrjár máltíðir, en í miklum vinnutörnum finnst mér betra að borða oftar og minna í einu. Ég finn mig alltaf best þegar ég borða hreina fæðu sem ég útbý sjálf. Góður chia-grautur er t.d. eitt það besta sem ég fæ. Allir kúrar eru söluvara sem með öflugri markaðssetningu eiga að skapa tekjur fyrir fólk og fyrirtæki. Í öllum hraðanum erum við ginnkeypt fyrir lausnum og alltaf til í að prófa eitthvað nýtt. Á meðan heldur þessi iðnaður áfram að stækka og blómstra. Þótt þessir kúrar hafi kennt mér margt gott og gefið mér hugmyndir að nýjum uppskriftum hef ég líka staðfest að þeir virka ekkert sérstaklega vel og eru alls ekki fyrir alla.

Það er svo áhugavert hvernig við hugsum. Núna eftir þetta frábæra sumar þegar margir eru búnir að borða og drekka meira en venjulega er rokið á ketófæði til að græja hlutina í stað þess bara að borða meira hollt. Þetta er auðvitað galið. Ég er ekki að segja að ketó virki ekki en það er samt áhugavert hvað margir beita sig hálfgerðu ofbeldi í mataræði með því að vera á kúrum sem þeir þurfa ekki að vera á.“

Af hverju byrjaðir þú að starfa við heilsurækt í upphafi?

„Fyrsta stöðin sem ég æfði hjá var Baðhúsið og þau auglýstu hóptímakennaranámskeið sem ég skellti mér á og ég var með í maganum yfir því að þurfa að kenna sjálf á námskeiðinu en eitt leiddi af öðru og Sævar bróðir Lindu Pé gaf mér tækifæri og þannig hófst þetta allt saman.“

Hefurðu alltaf verið í svona góðu formi?

„Ég hef alltaf hreyft mig mikið og hef þurft á því að halda en nei, ég hef ekki alltaf verið í góðu formi. Eftir að ég átti elsta strákinn minn fyrir 21 ári var ég í mjög lélegu formi, alltof þung, og þá fór ég af stað og hef ekki stoppað síðan en ég hef ekki alltaf æft eða kennt eins.“

Hvað gerir fólk almennt rangt þegar heilsan er annars vegar?

„Grunnvandinn er streita, en lélegur svefn, mikil drykkja, næringarlaus matur og annað óhóf er afleiðing af streitu. Það er kominn tími til að skoða vandlega hvað þetta þýðir og skilja rót vandans. Það eru til dæmis fjölmargar konur sem þrá að losna við aukakíló sem sitja sem fastast vegna streitu en ekki endilega rangs mataræðis. Streita hefur áhrif á mataræði sem setur hormónakerfið úr skorðum og þegar það gerist fer mjög margt úrskeiðis, t.d. meltingin.

Það er samt ánægjulegt hversu margir eru orðnir meðvitaðir um mikilvægi þess að hreyfa sig, njóta náttúrunnar og þeirra jákvæðu áhrifa sem hreyfing hefur á andlega líðan. En betur má ef duga skal. Ég skora á fleiri vinnustaði til að hvetja starfsfólk sitt til dáða. Styðja fólk til að stunda hreyfingu, hvort sem er á morgnana, í hádeginu eða á kvöldin. Betri líðan skilar sér í betri afköstum og andinn verður léttari fyrir vikið.“

Aðeins á persónulegum nótum – hvaða lífsreynsla hefur breytt þér mest?

„Ég varð ólétt 17 ára og á sama tíma var ég rekin úr FB fyrir mætingu, sem var ákveðinn skellur en mjög fyndið eftir á. Sem betur fer tók annar skóli við mér og ég hugsaði þarna að ég yrði bara að nota hvern dag og hvert ár af viti. Þannig að ég ákvað að hætta að vera „tossi“ í fullu starfi, tók mig á og byrjaði að læra af fullri alvöru.“

Hvað þýðir andleg góð heilsa fyrir þig?

„Fyrir mig persónulega hefur hún jafn mikla þýðingu og líkamleg heilsa. Við getum glímt við líkamleg veikindi og andleg og það er enginn munur þar á þótt við dæmum oftar fólk sem á við andleg veikindi að stríða. Mín heilsa er undir mér komin. Auðvitað spyrja veikindin ekki um stétt eða stöðu eða það sem á undan er gengið. Því er ég óendanlega þakklát fyrir mína líkamlegu og andlegu heilsu. Sjálf hef ég náð miklum tökum á líkamlegri heilsu og alltaf betur á andlegu hliðinni þar sem ég nota jóga, slökun, öndunaræfingar og önnur tól sem hjálpa mér að rækta hugann, ræð betur við tilfinningar og hef þannig bætt andlega heilsu. Með öllu því jóganámi sem ég hef bætt við mig er ég vel í stakk búin til að huga að eigin heilsu annarri en þeirri íkamlegu og það sem meira er hjálpa öðrum með bæði líkamlega og andlega líðan.“

Af hverju jóga og hugleiðsla?

„Í gegnum jógalífsspeki hef ég öðlast betri skilning á lífið, mig sjálfa og aðra sem ég finn ekki annars staðar. Hugleiðsla eða öndunaræfingar koma svo ró á öll kerfin okkar og ég finn bara svo mikinn mun þegar þetta tvennt er hluti af mínu lífi. Ekki misskilja, ég er langt frá því að vera fullkomin og dett inn og út. Ég er núna í 800 klukkustunda jógaþerapíunámi hjá Kristbjörgu Elí og það er eitt það magnaðasta sem ég hef lært lengi en ég á um 12 mánuði eftir í því námi. Þetta er líklega öflugasta verkfæri sem ég hef kynnst til að vinna með líkama fólks sem t.d. er að kljást við streitu.“

Er eitthvað sem þú ert að vinna í persónulega núna?

„Stærsta verkefni mitt þessa stundina er að hafa stjórn á eigin lífi þannig að ég nái jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Það verður víst enginn hamingjusamur af því að bara vinna!“

Hafa kennarar eitthvað að gefa nema þeir hafi yfirunnið sömu áskoranir sjálfir?

„Öll höfum við eitthvað að gefa þar sem við höfum jú hvert um sig upplifað hluti hver á sinn hátt. Að mínu mati eiga þjálfarar og kennarar að vera fyrirmynd þeirra sem þeir eru að leiðbeina. Jógakennari í miklu ójafnvægi, hversu vel sem hann er að sér í fræðunum, er seint að fara að koma einhverjum í að hugsa inn á við.“

Hver var þín helsta heilsutengda áskorun?

„Það sem ég veit núna er að það hefur alltaf verið streita og að draumar um ákveðna þyngd, pirringur á einhverjum aukakílóum eða tiltekt í mataræði voru viðbrögð við ástandi sem átti rætur að rekja til streitu. Nú skil ég betur hvað ég get gert og byrjað á réttum enda.“

Hvað er gott líf í þínum huga?

„Ég hef enga skilgreiningu á góðu lífi, við fáum bara þau verkefni sem eiga að koma til okkar í þessu lífi og ef þau eru vel leyst ætli það sé ekki gott líf, tilganginum náð.“

Hver er tilgangur þinn í lífinu?

„Flestir foreldrar deila því örugglega með mér að mikilvægasta hlutverkið sem við veljumst í er að koma börnunum okkar til manns og kenna þeim eins vel og við getum. Ég er mjög stolt af mínum strákum enda tel ég mig hafa verið góða fyrirmynd. Núna eru þeir að fylgjast með mér elta mína drauma og velja verkefni sem næra andann. Þeir hafa líka oft heyrt mig tönnlast á því að mér sé ætlað að þjálfa og leiðbeina fólki. Það er bara eitthvað í kerfinu mínu sem segir mér það.“

Hvers óskar þú þér fyrir veturinn?

„Ég vona að fólk setji sér langtímamarkmið í haust og fari í veturinn með skýra sýn á hvert það vill vera komið í vor eða á sama tíma að ári. Hafi á hreinu hvaða breytingar það vill gera, finni heppilega leið til þess og gleðjist yfir sérhverju skrefi í rétta átt. Það er megininntakið í kerfinu sem ég hef hannað og vinir mínir í stöðinni fylgja. Með því að gera þetta skemmtilegt veit ég að fólk hlakkar til og mætir hvort sem það er slydda, kuldi, að dagurinn hafi ekki verið sem bestur í vinnunni eða eitthvað annað sem er svo auðvelt að láta slá sig út af laginu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál