Búinn að léttast um 62 kíló á þessu ári

Eyþór Árni Úlfarsson fór í hjáveituaðgerð 8. apríl síðastliðinn.
Eyþór Árni Úlfarsson fór í hjáveituaðgerð 8. apríl síðastliðinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eyþór Árni Úlfarsson varð landsþekktur á einni nóttu þegar hann keppti í Biggest Loser Ísland 2014. Hann hafði nokkra sérstöðu því hann var þyngsti keppandinn í sjónvarpsþáttaröðinni. Nú stendur hann á tímamótum því hann er léttari en nokkru sinni fyrr eftir hjáveituaðgerð. Síðustu misseri hafa verið honum erfið því auk aðgerðarinnar gekk hann í gegnum skilnað í byrjun árs 2018 sem tók á hann.

„Ég er almennt bara þokkalegur í dag en það hefur samt rosalega margt gengið á hjá mér og því miður alls ekki allt gott. Ég er til dæmis fráskilinn í dag, sem ég hef forðast að ræða opinberlega hingað til, og svo missti ég móður mína í júní. Þetta tekur allt á og stundum er erfitt að halda áfram en á móti kemur dóttir mín sem stöðugt heldur mér við efnið og lætur mig vilja verða besta útgáfan af sjálfum mér þó að ekki væri nema til að geta alið hana sem best upp og verið til staðar fyrir hana,“ segir Eyþór en hann og fyrrverandi eiginkona hans eiga saman dóttur sem fæddist haustið 2015. Eftir að Eyþór tók þátt í Biggest Loser fann hann ástina á Tinder og gekk í hjónaband sumarið 2015. Í janúar í fyrra skildi leiðir og segir Eyþór að hjónabandið hafi verið komið á endastöð.

„Það má eiginlega segja að hjónabandið hafi ekki virkað þótt við höfum gert okkar besta. Á endanum var þetta besta lausnin að fara sitt í hvora áttina,“ segir hann og játar að þetta sé búið að vera mjög erfitt.

„Við barnsmóðir mín eigum í fínu sambandi í dag og dóttir okkar er það sem skiptir mestu máli. Við faðir minn búum saman núna, eftir að móðir mín féll frá, og svo er alltaf yndislegur tími þegar dóttir mín er hjá okkur. Dóttir mín er annars það albesta við líf mitt í dag og án hennar veit ég hreinlega ekki hvar ég mundi vera en það væri alls ekki eins gott, vegna hennar vil ég gera hvað sem er til að verða betri manneskja,“ segir hann einlægur.

Eyþór keppti tvö ár í röði í Biggest Loser Ísland.
Eyþór keppti tvö ár í röði í Biggest Loser Ísland.

Fór í hjáveituaðgerð

Eyþór er lengi búinn að glíma við offitu. Í vor fór hann í hjáveituaðgerð sem hefur framkallað miklar breytingar á lífi hans.

„Þessi ákvörðun var reyndar tekin í fyrra og var mjög erfið. Ég var efins um að ég ætti að stíga þetta skref. Þannig var að ég var orðinn 276 kg sem er það þyngsta sem ég hef nokkurn tímann verið. Ég var kominn í samstarf við Reykjalund sem á allt mitt þakklæti skilið. Aðgerð var alls ekki uppi á borði hjá mér því ég hreinlega var bara svo hræddur við hugmyndina. Síðan bara 2-3 dögum eftir að ég var kominn inn á Reykjalund þá fékk ég svaðalega sýkingu í fótinn og var lagður inn á Borgarspítala með 40 stiga hita og allt í rugli. Við tóku tvær vikur á spítala og átta vikur á sýklalyfjum samanlagt til að losna við þessa sýkingu. Á þeim tíma talaði læknirinn sem er yfir offitusviðinu á Reykjalundi við mig um magaaðgerð og hvort ég væri til í að hitta lækni sem gæti frætt mig betur. Ég samþykki það og hitti þá Aðalstein sem sér að miklu leyti um þessar aðgerðir sem gerðar eru á Landspítalanum,“ segir hann.

Eyþór segir að hann hafi skrapað ákveðinn botn á þessum tíma og segir að hann hafi bara ekki getað meir.

„Ég var mjög brotinn andlega og samþykkti að fara í aðgerð. Ég áttaði mig á því að ástandið gæti ekki versnað þaðan í frá. Í framhaldi af þessu öllu þurfti ég tíma til að jafna mig eftir sýkinguna. Ég var búinn að fara á einhver námskeið á Reykjalundi og líka á mikið af fundum en fagfólkið þar hjálpaði mér mjög mikið í því að breyta mataræðinu og byrja að léttast.“

Eyþór segir að í framhaldinu hafi verið ákveðið að hann væri í nokkrar vikur á Reykjalundi í undirbúningi áður en aðgerðin sjálf væri gerð.

„Sá undirbúningur byrjaði í mars eða beint eftir fertugsafmælið mitt, sem ég ákvað að líta á sem svona snúningspunkt í mínu lífi. Maður þarf víst að læra að setja sjálfan sig í rétt andlegt ástand.

Þarna var ég 254 kg og var aðeins farinn að geta hreyft mig smá, labbað og eitthvað. En út af mataræðisbreytingum þá hafði mér líka tekist að losna við sykursýkitýpu 2 sem ég var greindur með 2016, sem var stór plús fyrir áframhaldið.“

Eyþór segir að mataræði hans sé mjög breytt.
Eyþór segir að mataræði hans sé mjög breytt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Loksins rann dagurinn upp

Hjáveituaðgerðin sjálf fór fram 8. apríl síðastliðinn. Þá var Eyþór búinn að léttast enn meira og kominn niður í 245 kíló.

„Fyrir aðgerð var ég farinn að ganga einn til tvo kílómetra á dag. En ég játa að ég stressaðist rosalega upp við að vita að það væri svona stutt í þetta, hlutirnir eru einhvern veginn alltaf minna mál þegar þeir eru ekki að fara gerast alveg strax,“ segir Eyþór.

Eyþór segir að það hafi komið honum á óvart að aðgerðin var miklu minna mál en hann grunaði í upphafi.

„Aðgerðin sjálf er svo alls ekkert mál og ég hálfskammast sín fyrir að hafa verið hræddur við þetta svona lengi. Ég fór í svæfingu og var rúmfastur í hálfan dag. Þá er mælt með að fara að standa upp og labba aðeins um, það hjálpar líka með að jafna sig og losa loft sem er notað til að gera aðgerðina. Síðan ferðu heim daginn eftir, svo einfalt er það,“ segir hann og bætir við:

„Aðalvinnan tekur við heima, þú þarft að lifa á vökva í tvær vikur og síðan maukuðum mat í tvær vikur eftir það. Það er samt alls ekki eins mikið mál og fólk mundi halda. Eftir mauktímabilið getur maður síðan aðeins farið að prófa sig áfram með að tyggja. Maður eiginlega bara hægt og rólega lærir að borða alveg upp á nýtt,“ segir hann.

Eyþór þurfti að taka það rólega fyrstu vikurnar og segir hann að ekki sé mælt með mikilli hreyfingu eftir aðgerð.

„Ég léttist líka frekar ört fyrst til að byrja með, sérstaklega á vökva- og mauktímabilinu. En ég var að detta niður um sirka 5-6 kg á viku á þeim tíma. Margir vita ekki að maður lendir alltaf reglulega í svona stoppi þar sem maður stendur alveg í stað og það er bara alveg eðlilegt. Þá er líkaminn að ganga í gegnum mikið og þarf að aðlagast annað slagið.

Núna eru 23 vikur liðnar síðan ég fór í aðgerð og ég er slétt 192 kg í dag eða 53 kg léttari en þegar aðgerðin var gerð, og 62 kg frá því að ég átti afmæli. Ég er enn að léttast en ekki á sama hraða og fyrst. Ég passa upp á að labba töluvert og geri æfingar heima við en er ekki byrjaður í ræktinni ennþá en geri ráð fyrir að byrja á næstu dögum.“

Spurður um mataræði sitt segist Eyþór borða allt annan mat í dag en áður.

„Mataræði er algerlega allt annað en hér áður fyrr, bæði get ég borðað rosalega lítið og matur fer allt öðruvísi í mig en áður. Ég reyni til dæmis mikið að vinna með svona kjötkássurétti og nota mikið grænmeti og baunir með góðri sósu og kjöti. Ég læt það duga mér. Oft bý ég til fjóra til fimm skammta í einu. Laktósi fer ekki vel í mig og ég þarf að passa sykurneyslu og kolvetnainntöku. Ég uppgötvaði mjólkurvörur frá Örnu og er alveg ástfanginn af þeim.

Maður þarf líka að passa að borða millibita á milli máltíða og passa að borða nóg prótein til að koma á móts við vöðvarýrnun. Annars get ég ekki borðað svona venjulegan mat nema bara í litlu magni og maður verður að tyggja vel og lengi. Að kyngja of hratt eða tyggja ekki nóg veldur mikilli vanlíðan. Eins og ég sagði þá lærir maður að borða upp á nýtt. Ég veit í raun ekkert hvaða þyngd ég get búist við fara niður í en mér skilst að það sé svona eitt til eitt og hálft ár þar til maður þurfi að fara virkilega að hafa fyrir hlutunum eins og fyrir aðgerð. Þannig að siðirnir sem maður temur sér á þeim tíma og vinnan sem maður leggur á sig hjálpar allt svakalega.“

Síðustu misseri hafa verið snúin hjá Eyþóri.
Síðustu misseri hafa verið snúin hjá Eyþóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hér er hægt að fylgjast með Eyþóri á Snapchat.
Hér er hægt að fylgjast með Eyþóri á Snapchat.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál