Herdís Hallmars: Tengir saman góða heilsu og andlega vellíðan

Það er fátt eins gefandi og nærandi og sönn vinátta …
Það er fátt eins gefandi og nærandi og sönn vinátta að mati Herdísar. mbl.is/Arnþór Birkisson

Herdís Hallmarsdóttir lögmaður er um þessar mundir í EMBA-námi í Copenhagen Business School. Hún elskar útivist; að hjóla og ganga og einbeitir sér einnig að þeirri list að losa sig úr óheilbrigðum samskiptum og undan ábyrgð á flækjum og hegðun annarra. 

Hvað gerir þú til að huga að heilsunni?

„Ég huga mikið að sjálfsrækt sem ég tel vera lykilinn að almennri vellíðan og góðri heilsu. Fyrir mig skiptir máli að vera í heiðarlegum og nánum tengslum við mig sjálfa og minn nánasta kjarna. Þar datt ég í lukkupottinn, ég á sterkan bakhjarl í mömmu minni, krakkarnir mínir eru frábærir einstaklingar og tilveran væri mun fátæklegri ef ég ætti ekki vinkonur mínar.

Núna er ég að líka að einbeita mér að þeirri list að losa mig úr óheilbrigðum samskiptum og undan ábyrgð á flækjum og hegðun annarra. Til þess er ég að læra að sleppa hendinni af því sem ég hef ekki stjórn á, takast frekar á við þá hluti eins og þeir eru og afgreiða þá fyrir það sem þeir eru.“

Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig?

„Ég tengi alltaf saman góða heilsu og andlega vellíðan. Grunnurinn er nægur svefn, góð næring og hreyfing. Þennan grunn þarf svo að krydda með einhverju sem maður hefur gaman af. Ekki gleyma að leika sér. Núna hef ég mjög gaman af því að hjóla og ganga og þar vegur góður félagsskapur þungt. Þá er ég alltaf að læra og vonandi gerir það mig að betri manneskju.“

Hvað borðar þú daglega?

„Ég verð að viðurkenna að ég gæti tekið betur til í mataræðinu. Ég hef aðallega átt erfitt með að borða reglulega. Ég gleymi að borða í amstri dagsins og svo fellur blóðsykurinn og viðbragðið lætur ekki á sér standa. Gleypi eitthvað í mig – sem er við höndina og án umhugsunar. Í dag reyni ég að eiga soðið egg og skyr til að grípa í og forðast brauð. Þessi litla tiltekt hefur hjálpað mér mikið. Annars er ég sælkeri og elska að borða góðan mat í gefandi félagsskap. Ekkert jafnast til dæmis á við hvítlauksristaðan humar, enda fæ ég vatn í munninn bara við tilhugsunina.“

Hvernig æfir þú?

„Ég er svo heppin að eiga hund sem þarf mikla hreyfingu. Ég fer í göngu daglega og nýt samverunnar með Míu minni. Þess utan reyni ég að æfa eða leika mér eitthvað á hverjum degi, hvort sem það er að skokka, ganga, hjóla eða fara í tíma í Hreyfingu. Félagsskapur skiptir miklu í vali á æfingu og leik, enda fátt sem jafnast á við að hitta góða vinkonu.“

Herdís Hallmarsdóttir segir mikilvægt að hafa gaman af lífinu.
Herdís Hallmarsdóttir segir mikilvægt að hafa gaman af lífinu. mbl.is/Arnþór Birkisson

Hvernig hugsarðu?

„Ætli ég sé ekki eins og svo margir í kringum mig, hættir til að ofhugsa hlutina. Ég veit að hugarfar skiptir öllu og lykillinn er að ná tökum á huganum. Til að ná betri stjórn á hugsunum sínum er gott að ná fjarlægð og yfirsýn. Í fjarlægðinni fær maður betri sýn á sitt nánasta umhverfi og nær samhliða betri tökum á þeim aðstæðum sem maður er í hverju sinni og hvernig best er að bregðast við.“

Hvernig ferðu að því að vera besta útgáfan af þér daglega?

„Ég ber ábyrgð á mér og minni líðan og ég trúi því að ef ég ber umhyggju fyrir mér og stýrist af kærleika fyrir mínum nánustu verði ég besta útgáfan af mér. Þetta er samt sem áður áframhaldandi ferli, maður nær líklega seint endastöð í þessari bestun.“

Hvað viltu að lesendur viti?

„Verum góð við okkur, dæmum okkur ekki hart, höfum frekar bara gaman af því að vera til. Gerum raunhæfar kröfur til okkar. Leyfum okkur að vera ófullkomin en samt nóg.“

Herdís segir mikilvægt að við gerum raunhæfar kröfur til okkar …
Herdís segir mikilvægt að við gerum raunhæfar kröfur til okkar og annarra. mbl.is/Arnþór Birkisson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál