4 fæðutegundir sem auka kynhvötina

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.

„Hvað er betra en að fá fæðutegundir sem auka kynhvötina? Hér kemur listi fullur af náttúrulegum fæðutegundum sem auka kynhvötina og kveikja á ástarbálinu,“ segir Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi sem rekur fyrirtækið Lifðu til fulls: 


Dökkt lífrænt súkkulaði

Fólk hefur borðað súkkulaði á ýmsa vegu síðan 450 fyrir Krist! Súkkulaði var oft bendlað við guði og talið vera algjört undrameðal og var notað við ýmsum kvillum. 

Í súkkulaði er efnið trýptófan, sem er eitt grunnefnanna í serótóníni sem tengist kynferðislegri örvun. Annað efni sem er í súkkulaði er phenylethylamine sem er örvandi efni, sem losnar úr læðingi þegar fólk verður ástfangið. Hér er æðisleg uppskrift af súkkulaðisjeik með fudge-sósu! 

Macaduft

Maca-rótin er ættuð frá Perú og er þekktust fyrir að hafa orkugefandi og hormónajafnandi áhrif. Rannsóknir hafa sýnt að maca getur aukið kynhvöt hjá bæði konum og körlum.

Ef þú ætlar að prófa maca mæli ég með að velja gelatíniserað maca. Sjálf nota ég aðeins gelatíniserað maca duft þar sem það meltist betur, en sem barn glímdi ég við iðruólgu (IBS) sem lýsir sér með meltingarkrömpum og hægðatregðu daglega. Ég hef því aldrei þolað maca fyrr en ég prófaði gelatíniserað maca. Ég nota þetta hér sem fæst í yogi.is, netverslun. Ég set macaduftið oft út í búst, t.d. þessa grænu orkubombu sem er fullkomin til að byrja vikuna!

Kakósmjör

Fitan úr kakóbauninni sem ilmar eins og súkkulaði er leynivopnið sem þú þarft í svefnherbergið og í súkkulaði og eftirréttagerðina. 

Ég hef notað kakósmjör frá Raw chocolate company sem mér finnst æði, það hef ég fengið í Heilsuhúsinu og Nettó. Ég set stundum aðeins af kakósmjöri í heita chaga-kakó mitt (sjá hér!) Einnig hef ég fundið kakósmjör varasalva frá versluninni Mamma veit best.

Ginkgo-jurtin

Halló, náttúruleg lausn við stinningarvanda og getuleysi karla!

Gingko Bilopa er þekktust fyrir góð áhrif á æðakerfi og blóðstreymi, minni, einbeitingu og úthald. Það hefur gagnast mörgum við mígreni og haft góð áhrif á hand- og fótkulda.

Konur geta einnig haft gott af Ginko Bilopa þar sem það eykur blóðflæði, slakar á vöðvum og er talið geta létt lundina. Ég mæli með þessum hér frá Solary sem fæst í Heilsuhúsinu. 

Ég vona að greinin hafi vakið lukku hjá þér og þínum heittelskaða en ég hef beðið lengi eftir að deila þessari grein með ykkur.

Viltu læra um fleiri fæðutegundir sem hafa jákvæð áhrif á heilsu og orku?

Skráðu þig á ókeypis fyrirlestur sem ég er að halda í beinni frá netinu miðvikudaginn 20. nóvember kl. 20. Með því að koma færðu einföld og sannreynd skref sem þú getur strax hafist handa á, uppskrift sem dregur úr sykurlöngun, próf sem tekur mið af heilsunni, næstu skref í breyttum lífsstíl og margt margt fleira! Þetta er síðasti fyrirlesturinn á árinu svo ég mæli með að tryggja þér pláss HÉR strax í dag.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál