Léttari en fólk kallar hana samt feita

Gemma Collins segir að fólk segi enn að hún sé …
Gemma Collins segir að fólk segi enn að hún sé feit. Samsett mynd

Breska fjölmiðlakonan Gemma Collins hefur lést um tæp 20 kíló á síðustu mánuðum en segir að fólk kalli sig feita samt sem áður.

Collins hefur verið áberandi í breskum fjölmiðlum á síðustu árum en hún var vel í holdum um árabil. Fyrr á þessu ári ákvað hún að setja heilsuna í forgrunn og léttist um 20 kíló. Þrátt fyrir það er enn gert grín að henni fyrir að vera feit. 

„Mér líður ótrúlega vel en fólk er samt alltaf að segja að ég sé feit og það pirrar mig. Ég er eins og ég er og ætla ekki að biðjast afsökunar á því. En ég hugsa samt: „Ó Guð, hvenær hættir þetta?“ Ég er hamingjusöm. Ég er hraust og elska lífið. Og ég ætla ekki að veita þessum tröllum athygli,“ sagði Collins í viðtali

Collins hefur farið ýmsar óhefðbundnar leiðir til þess að láta kílóin fjúka. Hún sagði meðal annars að hún hefði brugðið á það ráð að fela girnilegan mat fyrir sjálfri sér í skottinu á bílnum sínum. Nú þegar líða fer að jólum eru freistingarnar meiri svo hún hefur stundum keypt meira af girnilegum ostum og öðru góðgæti. Hún setur það allt í skottið á bílnum svo hún borði ekki kræsingarnar. 

Hún er nú farin að einbeita sér að því að hreyfa sig meira. Hún byrjaði á mataræðinu og hefur nú fært sig yfir í hreyfingu. Hún er farin að labba mun meira en hún gerði og hætt að taka leigubíl stuttar vegalengdir.

Gemma Collins hefur misst tæp 20 kíló á árinu.
Gemma Collins hefur misst tæp 20 kíló á árinu. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál