Svona heldur Kate Beckinsale sér í formi

Kate Beckinsale leggur mikið upp úr því að vera í …
Kate Beckinsale leggur mikið upp úr því að vera í góðu formi. mbl.is/AFP

Leikkonan Kate Beckinsale er 46 ára og hefur sjaldan eða aldrei verið í betra formi. Hún blandar saman hollu mataræði, erfiðum æfingum og teygjum svo dæmi séu tekin. Þeir sem fylgjast með henni á samfélagsmiðlum sjá að hún elskar að hreyfa sig og dansa. Grunninn að góðu formi hennar má sjá hér:

Mataræði

Beckinsale borðar þrjár máltíðir á dag og tvær litlar þess á milli. Hún drekkur einnig mikið af vatni yfir daginn. Maturinn sem hún borðar er vanalega heimagerður og lífrænn. Hún forðast sykur, kartöflur og önnur kolvetni. 

Í morgunmat borðar hún sem dæmi soðin egg, eggjakökur eða hafragraut. Í hádeginu fær hún sér kjúkling, brún hrísgrjón eða grænmeti. Síðan á kvöldin fær hún sér fisk, kjúkling eða kalkún svo dæmi séu tekin. 

Líkamsrækt

Hún fer í leikfimi fimm sinnum í viku og gerir erfiðar æfingar í tæpa klukkustund í senn. Hún er mikið fyrir að dansa á milli æfinga og síðan eyðir hún góðum tíma í teygjur. Hún er með þjálfara að teygja á sér, en einnig teygir hún heima fyrir. Með þessu móti fær hún langa vöðva. 

View this post on Instagram

@bradsiskind and I and his little towels are running off to join the circus 🎪 🤡

A post shared by Kate Beckinsale (@katebeckinsale) on Oct 11, 2019 at 3:36pm PDT

Andleg vellíðan

Að mati Beckinsale skiptir andlega hliðin ekki síður máli en sú líkamlega. Hún mælir með að prófa að hugsa hlutina eilítið öðruvísi á degi hverjum og segir að fallegar hugsanir geti breytt heilmiklu í lífinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál