Þyngdist um fimm kíló yfir hátíðirnar

Kate Hudson þyngdist í lok desember.
Kate Hudson þyngdist í lok desember. AFP

Leikkonan Kate Hudson leyfði sér að slaka, njóta og borða yfir hátíðirnar eins og svo margir aðrir. Hún greindi frá því á Instagram að hún hefði þyngst um fimm kíló yfir jól og áramót. Hún er ekki ánægð með töluna og ætlar að létta sig aftur. 

Hudson segist vanalega vera rúmlega 56 kíló en segist nú vera um 61 kíló. Segist hún þess vegna þurfa að létta sig um fimm kíló. Hún telur reyndar að eitt og hálft til rúmlega tvö kíló séu uppsafnaður bjúgur. 

Hudson segir að hún sé mjög grönn en á sama tíma mjög sterk. Segir hún mikilvægt að skilja að það er ekki endilega slæmt að vera þungur þegar kemur að vöðvum. Þar sem hún er þó þyngri en vanalega ætlar hún sér þó að léttast aðeins. 

Líklega eru þó nokkrir sem kannast við það að þyngjast aðeins yfir jól og áramót. 

Kate Hudson fór á vigtina í sögu á Instagram.
Kate Hudson fór á vigtina í sögu á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál