Hélt veislu þegar hún var búin að léttast um 60 kíló

Hjördís Bára Hjartardóttir lifir allt öðru lífi í dag eftir …
Hjördís Bára Hjartardóttir lifir allt öðru lífi í dag eftir að hún fór í aðgerðina. mbl.is/Árni Sæberg

Hjördís Bára Hjartardóttir fór í magahjáveituaðgerð og segir lífið eins og á bleiku skýi í dag. Hún er hamingjusöm, glöð og frjáls að eigin sögn þó að aðgerðin hafi ekki gengið alveg snurðulaust fyrir sig.

Hjördís Bára hefur aldrei upplifað stríðni í tengslum við þyngd sína. Hún er ósköp venjuleg 23 ára stelpa í dag, lífsglöð, með mikið sjálfstraust og vinmörg. Hún geislar af gleði og hamingju og hefur að eigin sögn alltaf verið með mikið sjálfstraust og félagslega sterk. Hún starfar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði og í félagslegri heimaþjónustu hjá Dögum í Garðabæ og segir það gefa lífinu tilgang að starfa með fólki sem þarf á henni að halda.

Spurð um efnaskiptaaðgerðina sem hún fór í segir Hjördís Bára ýmislegt hafa komið henni á óvart.

„Það sem kom svolítið á óvart var hvað þetta var erfitt í fyrstu. Maður þarf að breyta lífsstílnum sínum áður en aðgerðin er framkvæmd, eða það gerði ég í það minnsta. Síðan þurfti ég að ná tökum á þessum nýja lífsstíl í kjölfarið. Ég mátti sem dæmi ekki borða sætindi í fyrstu og ég stóð við það.“

Hjördís Bára var búin að prófa alla megrunarkúra heimsins.
Hjördís Bára var búin að prófa alla megrunarkúra heimsins.

Erfitt að taka ákvörðunina um aðgerð

Hún segir ákvörðunina um að breyta líkamanum fyrir lífstíð hafa tekið á hana. Þess má geta að fyrir aðgerðina átti hún erfitt með að spenna öryggisbelti í flugvélum, hún var með stöðugan höfuðverk og verk í hnjám og stoðkerfinu svo eitthvað sé nefnt.

„Þetta er besta ákvörðun sem ég hef tekið. Þó ég hafi ekki verið orðin mjög veik á þessum tímapunkti, þá stefndi allt í það að óbreyttu í mínu lífi.“

Allt eins og það átti að vera í æsku

Hjördís Bára er brosmild og hress og þakkar það góðu uppeldi og kærleiksríkri fjölskyldu.

„Ég kem úr stórri fjölskyldu þar sem við erum níu systkinin. Ég er alin upp með báða foreldra mína í hjónabandi, þau eru hamingjusamlega gift og í raun vildi ég að sem flestir hefðu upplifað lífið eins og ég hef upplifað það, í faðmi fólks sem elskar mig án skilyrða. Ég er sú eina í minni fjölskyldu sem hef misst svona stjórn á þyngdinni. Ég hef margoft sest niður með mömmu og pabba sem segja mér að allt til níu ára aldurs var ég í eðlilegri þyngd. Síðan er eins og eitthvað hafi breyst, ég hætti að borða í mötuneyti skólans og byrjaði að leita meira í brauð og þess háttar. Ég og systir mín sem er nálægt mér í aldri höfum fylgst mikið að í lífinu. Hún og ég höfum alltaf borðað svipaðan mat. Hún grenntist og lengdist hins vegar á meðan ég þyngdist og þyngdist.“

Áður en Hjördís Bára ákvað að fara í hjáveituaðgerðina hafði hún prófað alla megrunarkúra í landinu.

„Mamma og pabbi hafa alltaf verið til staðar og reynt að aðstoða mig. Það má segja að ég hafi leitað allra leiða til að léttast. Ég þori að fullyrða að ég hef prófað alla kúra sem fyrirfinnast í landinu. Ég prófaði danska kúrinn, Herbalife, fjarþjálfun og Heilsuborg svo eitthvað sé nefnt. Lét athuga með skjaldkirtilinn í mér, fór í Orkuhúsið, til næringarfræðings og þar fram eftir götunum. Hjáveituaðgerðin var því það eina sem ég átti eftir að gera.“

Heldur ung fyrir efnaskiptaaðgerð

Hjördís Bára þykir frekar ung að aldri fyrir inngrip á þessu sviði en segir að fjölskyldan hafi stutt við bakið á henni frá upphafi.

„Þau lögðu sína dagskrá til hliðar fyrir mig. Enda vildu þau gera allt til að ég myndi ná upp heilsunni minni aftur. Það sem ég fór í gegnum var að taka ákvörðun hvað ég vildi segja við vini mína þessu tengt. Ég ákvað að stíga bara fram í heiðarleika og að leyna þá ekki neinu. Ég mæli með því fyrir alla, enda á ég stóran vinahóp sem hefur staðið fast við bakið á mér allan tímann. Sem dæmi þá héldum við boð úti í garði í sumar, þar sem við héldum upp á að ég hafði misst 60 kg. Við vorum með köku og sextíu blöðrur, kampavín og ræðuhöld svo dæmi séu tekin. Það hefur gefið mér mikið að geta haldið upp á alls konar hluti í þessu ferli. Mamma hefur gefið mér nýjar flíkur við viss tilefni og allir eiga hlutdeild í mínum bata að þessu leyti. Ég hefði aldrei getað þetta ein, því vil ég segja að foreldrar mínir, systir og fleiri aðilar eiga stóran hlut í þessum sigri með mér.“

Varð veik eftir aðgerðina

Hvernig er að fara í hjáveituaðgerð?

„Ég vildi vita sem minnst um hvernig aðgerðin var gerð en hafði undirbúið mig vel fyrir aðgerðina andlega. Ég reyndi að læra allt um þennan nýja lífsstíl, enda fer maður ekki í svona aðgerð nema með höfuðið rétt stillt. Ég valdi að fara á hrökkbrauðskúr, þar sem ég borðaði einungis hrökkbrauð og þannig missti ég tíu kíló. Sjálf aðgerðin tókst ágætlega hjá Aðalsteini og fór ég heim eftir hana. Síðan fjórum dögum eftir aðgerð varð ég fárveik og þurfti að fara á spítala aftur í aðra aðgerð. Í tvær vikur eftir aðgerð má maður einungis drekka. Ég hins vegar hélt engu niðri eftir fyrri aðgerðina. Aðalsteinn fyldist vel með mér allan tímann og þegar ég hafði samband við hann á sunnudegi nokkrum dögum eftir fyrri aðgerðina þá komst hann að því að ein af tengingunum í görnunum hafði beyglast og því fann vökvinn sér ekki eðlilega leið eftir meltingarfærunum. Það var talsvert áfall að fara í svona tvær aðgerðir, eins þurfti ég að vera í níu daga á spítala eftir seinni aðgerðina. Eftir að þessu var kippt í lag þá hef ég ekki fundið fyrir neinum óþægindum. Sem betur fer.“

Hjördís Bára segir að hún hafi verið mjög heppin með að hafa sérfræðing á borð við Aðalstein með sér í þessu.

„Hann er mikill fagmaður á sínu sviði og aðgengið að honum var einstaklega gott allan tímann.“

Hluti af eftirfylgni eftir hjáveituaðgerð er að hitta næringarfræðing sem gefur upplýsingar um nauðsynlega hluti sem þarf að hafa í huga varðandi mataræði, vítamín og fleira að hennar sögn.

„Eftir aðgerð sem þessa þarf maður að passa sig að borða mikið prótein. Þar sem maður getur borðað minna en aðrir verður maður að huga vel að öllum næringarefnum í matnum. Síðan þarf ég að taka vítamín það sem eftir er ævinnar. Ég fer í blóðprufur reglulega til að fylgjast með gildunum í blóðinu. Margir vigta ofan í sig mat eftir aðgerð en ég hef einsett mér að borða hollan mat og borða sem dæmi mjög lítinn sykur þar sem ég þoli hann ekki lengur. Bríet næringarfræðingur í Klíníkinni er frábær fagmaður og er ég búin að fara í þrjú skipti í eftirfylgni þangað frá aðgerð.“

Ertu búin að ná þyngdinni sem þú vilt vera í?

„Þó að þyngdin skipti að sjálfsögðu máli er hún samt ekki aðalatriðið í þessu hjá mér. Líkaminn á mér er allur annar eftir aðgerðina, ég fer í leikfimi reglulega og hreyfi mig úti. Það er hins vegar andleg líðan mín sem hefur tekið mestum breytingum. Ég er eins og á bleiku skýi í dag.“

Hvernig lýsir þú muninum á andlegri líðan?

„Mér líður vel öllum stundum, í raun gæti ég ekki ímyndað mér lífið betra. Ég er með mun betra sjálfstraust og mér líður vel alla daga. Ég byrjaði aftur í skóla eftir aðgerðina og mér hefur aldrei gengið jafn vel í skóla og núna. Ég byrjaði að syngja í gospelkór Jóns Vídalíns, sem er eitthvað sem ég hefði aldrei þorað að gera áður. Það sjá allir að mér líður betur. Ég lifi heilbrigðu og eðlilegu lífi í dag og finnst ekkert erfitt lengur við lífið. Það er ekkert að stoppa mig í dag, enda talsverður munur að vera 72 kg léttari en áður. Það er eins og að losna við eina persónu af bakinu.“

Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?

„Ég útskrifast sem félagsliði næsta sumar og það sem mig langar að gera í framtíðinni er að hjálpa fólki sem þarf á mér að halda. Að starfa með gömlu fólki og börnum er einstakt. Við sem störfum með öldruðum gerum okkar allra besta alla daga.“

Hjördís Bára segir umræður í samfélaginu um aðbúnað gamla fólksins okkar stundum á villigötum.

„Ég vil hvetja alla þá sem hafa skoðanir á umönnun eldra fólks að kynna sér hvað er verið að gera fyrir fólkið okkar, t.d. á Hrafnistu í Hafnarfirði. Við bjóðum upp á allskonar afþreyingu fyrir skjólstæðinga okkar og gerum okkar besta. Ég er í nánum vináttutengslum við mörg þeirra. Ég gef þeim af minni visku og þau gefa mér af sinni. Það er varla til kærleiksríkara fólk að styðja við mann en gamla fólkið. Mörg þeirra eru mikið ein, og þar sem ég kem úr stórri fjölskyldu, umvafin ást og kærleika, langar mig að gefa þeim svolítið af því áfram. Það er mín köllun í lífinu. Að sjálfsögðu mætti alltaf setja meira fjármagn í málefni gamals fólks og barna, þá gæti fleira fólk unnið þau fjölmörgu störf sem þarf að inna að hendi fyrir þau.“

Er það hluti af þeim breytingum sem þú vilt sjá í framtíðinni?

„Já, ég vona að fólk hætti að kvarta yfir kerfinu og byrji bara að láta verkin tala. Að setja meiri peninga inn í heilbrigðiskerfið væri góð byrjun. Það er til margt gott fólk sem starfar í því fagi sem ég er í. Starfið er ekki auðvelt, hvorki líkamlega né andlega. En það gefur manni þúsundfalt til baka. Ég vona að fleiri aðilar sjái einnig hag sinn í að vinna með fólki sem þarf aðstoð í lífinu. Við vinnum með góðu fólki og stuðningurinn og hrósið frá þeim er eitt af því sem hefur haft mikil áhrif á líf mitt að undanförnu. Það má ekki gleymast.“

Þessi mynd var tekin í veislu sem Hjördís Bára hélt …
Þessi mynd var tekin í veislu sem Hjördís Bára hélt í tilefni af því að hún var búin að léttast um 60 kíló.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál