Alma Geirdal undirbýr dauðann

Þessi mynd var tekin af Ölmu Geirdal árið 2013 þegar …
Þessi mynd var tekin af Ölmu Geirdal árið 2013 þegar hún kom í viðtal á Smartlandi. mbl.is/Styrmir Kári

Alma Geirdal fékk brjóstakrabbamein og læknaðist af því og var heilsuhraust í tvö ár eða þangað til hún greindist aftur og nú krabbameinið búið að dreifa sér. Hún sagði sögu sína í Mannlífi sem kom út í dag.

„Mér líður ekkert rosalega vel í dag. Almennt er ég ótrúlega brött andlega, ég hef einhvern veginn náð að vera mjög jákvæð í gegnum þetta þó að ég sé raunsæ,“ segir Alma. „En líkamlega líður mér ekki vel, ég fór í aðgerð í desember og er að jafna mig eftir hana, þá lamaðist smágirnið í mér. Og í morgun fékk ég þær fréttir að meinið hefði stækkað. Í dag er krabbameinið búið að dreifa sér milli vöðva á svæðinu þar sem vinstra brjóstið var, tvö mein eru í hægra lunga og eitt í holhönd. Þetta er fjölgun á æxlum á sex vikum, þannig að andlega hliðin er ekki mjög sterk í dag. Líkamlega líður mér aldrei vel, eftir að þetta ferli hófst, þessi önnur atrenna,“ segir Alma í samtali við Mannlíf. 

Hún greinir frá því að hún sá á mjög sterkum lyfjum. 

„Ég er á sterkum lyfjum sem hjálpa gegn sársauka, en ég á aldrei verkjalausa mínútu. Ég er aldrei undir fimm, og yfir daginn er ég svona milli sex og átta,“ segir hún og vísar þar í fyrrnefndan mælikvarða. „Svo bættist þessi aðgerð við, ég er með stóran skurð eftir hana, 18 spor bara á maganum. Ég hef verið með æxli í bringunni á milli brjóstvöðva, það hefur verið að stríða mér og meiðir mig mikið núna.“

Alma Geirdal og Guðmundur Sigvarðsson trúlofuðu sig í desember.
Alma Geirdal og Guðmundur Sigvarðsson trúlofuðu sig í desember.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál