Ekki viðkvæm fyrir aldrinum

Eva Mendes er ekki viðkvæm fyrir aldrinum.
Eva Mendes er ekki viðkvæm fyrir aldrinum. Alexander Tamargo

Leikkonan Eva Mendes er ekki viðkvæm fyrir því að fólk bendi henni á að hún sé að eldast. Mendes birti myndband af sér um helgina og í athugasemdum var henni bent á að „hún væri farin að eldast“. Mendes er 45 ára og verður 46 ára nú í mars. 

Mendes tók þessari athugasemd með stóískri ró og svaraði: „Já, það er rétt hjá. þér. Ég þakka Guði fyrir að ég er að eldast. Það þýðir að ég er enn hérna. Ég verð 46 ára bráðlega og ég er þakklát fyrir hvern dag sem ég eldist um. Ætlaðirðu að reyna að láta mér líða illa með þessari athugasemd? Það tókst ekki. Ég er þakklát. Þannig að takk kærlega fyrir að minna mig á að ég er enn þá hérna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál