Baðar sig upp úr sótthreinsi í hverri viku

Laura Nicholls skellir sótthreinsi í baðið.
Laura Nicholls skellir sótthreinsi í baðið. Samsett mynd

Laura Nicholls, móðir í Bretlandi, baðar sig vikulega upp úr sótthreinsandi efninu Dettol. Nicholls deildi uppátækinu í hópi á Facebook í vikunni og uppskar blendin viðbrögð. 

Hin 33 ára Nicholls segist setja tvo tappa af Dettol Antiseptic Disinfectant út í baðvatnið einu sinni í viku og segir það gera frábæra hluti fyrir húðina. Hún er ekki sú eina á heimilinu sem baðar sig upp úr sótthreinsi en hún setur 8 ára son sinn reglulega í sótthreinsibað ef hann hefur verið úti að leika. 

Samkvæmt leiðbeiningum á brúsanum má nota Dettol á líkamann en einhverjir í hópnum tóku ekki vel í þetta uppátæki Nicolls sem notar efnið einnig til að skúra heima hjá sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál