Svona heldur Jennifer Lopez sér í formi

Jennifer Lopez fangar athygli fólks um víða veröld.
Jennifer Lopez fangar athygli fólks um víða veröld. mbl.is/AFP

Jennifer Lopez varð fimmtug á dögunum og hefur sjaldan eða aldrei verið í betra formi. Hún æfir nær daglega og leggur áherslu á gott mataræði. Á vef Harpers Bazaar má lesa um leiðirnar sem hún fer til að halda sér í formi. 

Eftirfarandi atriði eru það sem hún gerir. 

Æfingar

Jennifer Lopez reynir að hreyfa sig daglega. Hún fer út að hlaupa og æfir inni í æfingasal. Hún leggur hvað mest áherslu á magavöðva og handleggi. Þar sem hún gerir allt að fimm ólíkar æfingar fyrir magann og fjöldann allan af armbeygjum nokkrum sinnum í viku. Hún elskar að dansa og lyftir lóðum inni á milli. 

Mataræði

Þegar kemur að mataræði borðar hún reglulegar máltíðir þar sem grænmeti án sterkju er í aðalhlutverki. Hún reynir að hafa prótein í hverri máltíð og hefur stökum sinnum sætar kartöflur og brún hrísgrjón með kjúklingi eða fiski. Eins drekkur hún mikið af vatni daglega. 

Húðin

Þegar kemur að húðinni notar hún einungis það allra besta. Hreinsar húðina daglega og notar krem til að halda henni unglegri. 

Það sem Jennifer Lopez forðast er að drekka áfengi og kaffi. 

Jennifer Lopez í atriði sínu á hálfleikssýningu Ofurskálarinnar.
Jennifer Lopez í atriði sínu á hálfleikssýningu Ofurskálarinnar. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál