Svona heldurðu rassinum stinnum í sóttkví

Anna Eiríks mælir með að gera þessar æfingar heima, hvort …
Anna Eiríks mælir með að gera þessar æfingar heima, hvort sem þú ert í sóttkví eða treystir þér ekki í ræktina.

„Ég setti saman 10 mínútna æfingamyndband sem hægt er að vinna eftir heima í stofu þar sem margir eru nú í sóttkví. Það er um að gera að huga að heilsunni sinni eftir bestu getu en vera skynsamur og fylgja ráðleggingum landlæknis og halda sig heima fyrir ef maður hefur fengið fyrirmæli um það eða treystir sér ekki út meðal fólks og þá er gott að geta fylgt góðu æfingaplani heima í stofu,“ segir Anna Eiríksdóttir líkamsræktarþjálfari.

Þetta myndband þjálfar þol og kjarnavöðvana en hver æfing er unnin í 45 sekúndur, hvíld í 15 sekúndur á milli. Ef þú ert í góðu stuði og vilt lengri æfingu þá er um að gera að rúlla 2-3x í gegnum það og lengja þannig æfinguna.

FRÍ BUTTLIFT-ÆFING HÉR

Ég á fullt af góðum heimaæfingum inn á www.annaeiriks.is sem ég hvet þig til þess að skoða vel en þannig er hægt að nýta tímann vel og hreyfa sig þrátt fyrir að komast ekki út úr húsi. Um að gera að senda mér línu á annaeiriks@annaeiriks.is ef þig vantar ráðleggingar varðandi hvaða æfingaplan hentar þér best!

Anna býður lesendum mbl.is sem kunna að vera í sóttkví upp á 30% afslátt af heimaprógrammi sem krefst engra áhalda með kóðanum: sóttkví

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál