Er undirbúin fyrir sóttkví ef þess þarf

Leikkonan Ashley Judd er undirbúin fyrir að þurfa að fara …
Leikkonan Ashley Judd er undirbúin fyrir að þurfa að fara í sóttkví eins og svo margir aðrir í kringum hana í dag. mbl.is/AFP

Leikkonan og aðgerðasinninn Ashley Judd vekur máls á áhrifum kórónuveirunnar með nýlegri ljósmynd á samfélagsmiðlum af tómum hillum í hverfisversluninni sinni. 

„Við höfum eins og svo margir aðrir verið að kaupa vörur til að birgja okkur upp ef við endum í sóttkví eins og svo margir. Í hverfisversluninni okkar eru fjölmargar hillur orðnar tómar. Eins fengum við tilkynningu frá Harvard um að kennsla eftir vorfrí verði á netinu.“

Hún segist þakklát fyrir að hafa tileinkað sér lífsstílinn að lifa einn dag í einu og þá hæfni að kunna að hugsa vel um sig og taka ábyrgð á sér. 

„Þolinmæði, samvinna, velvild, rétt forgangsröðun og sjálfsábyrgð mun gagnast okkur sem einstaklingum hvað best og samfélaginu okkar líka.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál