Heimaæfing að hætti Sunnevu Einars

Sunneva Einars skellti í heimaæfingu.
Sunneva Einars skellti í heimaæfingu. mbl.is/Ófeigur

Þótt flestar líkamsræktarstöðvar séu opnar meðan á samkomubanni stendur eru ekki allir sem vilja stíga inn í ræktina á tímum veirunnar. Það þarf þó ekki að láta veiruna stoppa sig í að hreyfa sig.

Áhrifavaldurinn og nýútskrifaði einkaþjálfarinn Sunneva Eir Einarsdóttir er dugleg að deila æfingum með fylgjendum sínum á Instagram. Í gær deildi Sunneva þessari heimaæfingu með fylgjendum sínum en til þess að taka æfinguna þarf að eiga eitt stykki ketilbjöllu. 

Ketilbjöllur og lóð hafa selst í bílförmum hér á Íslandi síðastliðna viku svo kannski áttu eina slíka á heimilinu.

Í æfingu Sunnevu er að finna ketilbjöllusveiflur, mjaðmalyftur og réttstöðulyftur auk æfinga með eigin líkamsþyngd. Flestar æfingarnar er einnig hægt að finna á YouTube en mikilvægt er að bera sig rétt að til að forðast meiðsli.

Heimaæfing að hætti Sunnevu.
Heimaæfing að hætti Sunnevu. skjáskot/Instagram
mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál