Þyngdist um 11 kíló í faraldrinum

María Birta ásamt Ella Egilssyni, eiginmanni sínum.
María Birta ásamt Ella Egilssyni, eiginmanni sínum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

María Birta Bjarnadóttir leikkona er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. María Birta, sem var farin að velta 10 milljónum á mánuði sem verslunareigandi fyrir tvítugt, hefur undanfarin misseri búið í Bandaríkjunum og haslað sér völl í leiklistinni. Í viðtalinu ræða Sölvi og María Birta meðal annars um síðustu ár í lífi hennar og Covid-tímabilið, sem var vægast sagt skrýtið hjá Maríu Birtu og Ella manninum hennar.

„Ég og Elli tókum bara strax þá ákvörðun að við myndum ekki hitta neinn, þannig að frá 16. mars og alveg þangað til við komum til Íslands í ágúst hittum við eina stelpu. Annars vorum við bara saman í „lockdown“ í fimm mánuði. Við fórum ekki út úr húsi í tvo mánuði, ekki einu sinni í labbitúr,“ segir María Birta og heldur áfram:

„Svo fórum við í fyrsta göngutúrinn í maí og Elli tekur krúttlega „selfie“ af okkur og ég sé myndina og ég hugsaði: „hver er þetta?“ af því að ég var búin að fitna svo mikið. Ég hef aldrei í lífi mínu fitnað … en þarna var ég búin að fitna um 11 kíló á tveimur mánuðum af því að ég hreyfði mig ekki neitt! Ég var bara orðin eins og helíumblaðra.“

Ástandið í Bandaríkjunum hefur verið sérstakt eftir að Covid byrjaði og þau María og Elli fengu að finna fyrir því.

„Þetta var líka rosalega sérstakt af því að sama dag og ég er sett í launalaust leyfi er maður sem reynir að brjótast inn til okkar. Þannig byrjaði okkar Covid. Á meðan ég var á fundinum þar sem mér var tilkynnt að það væri verið að loka öllu og þar með vinnunni minni fæ ég símtal frá Ella (manninum mínum) þar sem hann segir mér að hann sé búinn að hringja á lögguna. Svo fer af stað eitthvert ferli þar sem við vissum ekkert hvað var í gangi, en það var reynt að brjótast inn hjá okkur aftur. Ég valdi þessa íbúð, þar sem ég hélt ég myndi búa ein í Las Vegas og valdi mér sérstaklega gott og öruggt hverfi. Eina skýringin sem við höfum er að fólk var orðið mjög örvæntingarfullt þarna í mars og innbrot ruku upp og allar byssur seldust upp í Nevada.“

Í viðtalinu ræða Sölvi og María Birta um adrenalínfíknina, löngunina til að vera alltaf að læra eitthvað nýtt, ferilinn í leiklistinni og margt margt fleira.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn á Spotify: 

María Birta Bjarnadóttir er viðmælandi Sölva Tryggvasonar.
María Birta Bjarnadóttir er viðmælandi Sölva Tryggvasonar. Morgunblaðið/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál