„Mig langar bara ekki í sykur“

Arndís Kjartansdóttir segir lífið öðruvísi eftir að hún ákvað að …
Arndís Kjartansdóttir segir lífið öðruvísi eftir að hún ákvað að hætta að borða sykur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Arndís Kjartansdóttir sérfræðingur á sviði tölvuþjónustu er áhugasöm um heilbrigt mataræði. Stór hluti aukatíma hennar fer í að prófa sig áfram í eldhúsinu og hefur hún sérstaklega gaman af því að prófa nýjar sykurlausar uppskriftir. Hún er þátttakandi í sykurlausum september og hefur verið án sykurs og kolvetna í 20 mánuði. Hún hvetur fólk til að láta matinn vera lyfið sitt og lyfið vera matinn sem það borðar.  

Hvers vegna ákvaðstu að verða sykurlaus á sínum tíma?

„Mig langaði að gera breytingar á mataræðinu mínu. Ég var að borða venjulegt íslenskt mataræði sem á köflum var ekkert sérlega hollt. Ég var að fylgjast með Maríu Kristu Hreiðarsdóttur á Snapchat og langaði að prófa Keto eins og hún. Ég fór að kynna mér Keto mataræðið. Ég á það til að sökkva mér mjög niður í eitthvað sem ég fæ áhuga á. Ég reyndi að fræðast um alla heilsufarslegu ávinningana af mataræðinu og komst að því að þetta væri eitthvað sem mig langaði að prófa því kostirnir voru svo margir. Ég byrjaði á keto 7. janúar 2019 og hef ekki tekið eitt hliðarspor síðan.“

Hvað mælir þú með fyrir þá sem vilja prófa þessa áskorun í mánuðinum?

„Að flækja málin ekki of mikið. Ég mæli með að taka út allar matvörur sem innihalda hvítan sykur og allar mikið unnar matvörur með löngum innihaldslýsingum. Að hafa eldamennskuna einfalda, með fáum einföldum hráefnum. Sykur kallar á meiri sykur og því er mikilvægt að borða eitthvað mettandi eins og prótein og fitu fyrri part dags til að halda niðri sykurpúkanum.“

Hvaða breytingar upplifðir þú í kjölfar þess að hætta að borða sykur?

„Ég upplifði ótrúlegar breytingar á orku og öll hugsun varð mun skarpari og skýrari. Ég finn aldrei þreytu, orkan er jöfn allan daginn og ég virðist hafa minni þörf fyrir svefn en áður. Ég sef vel og vakna úthvíld. Ég hef ekki orðið veik síðan ég breytti mataræðinu. Ég tek engar umgangspestir eða kvef. Blóðþrýstingurinn er orðinn eins og hjá unglingi og blóðsykurinn er í góðu jafnvægi. Ég er nokkrum kílóum léttari líka sem var aldrei aðalmarkmiðið heldur aðeins góður fylgifiskur þess að hætta að borða sykur. Aðalmarkmiðið var betri heilsa til framtíðar. Ein skemmtileg aukaverkun af Keto mataræðinu hjá mér virðist líka vera sú að starraflóin vill ekki lengur blóðið mitt. Ég á 2 kisur og var vön að vera útbitin af starrafló næstum árið um kring. Ég hef ekki fengið eitt bit síðan ég breytti mataræðinu.“

Hvernig var lífið áður?

„Lífið fyrir lífsstílsbreytinguna var ágætt. Ég var þó að síga upp á við í þyngd og blóðþrýstingurinn var líka farinn að hækka. Ég var oft þreytt og fannst ég þurfa að sofa 10 tíma um helgar og átti auðvelt með það. Eins var ég farin að leyfa mér að borða sætindi daglega og átti oft nammi í skúffunni í vinnunni.  Mér líkaði ekki vel þessi lífsstíll sem ég hafði tileinkað mér og vildi breyta því.“

Hvernig er lífið núna?

„Ég finn mest fyrir því að vera með meiri orku og síðan er hugsunin mjög skörp. Það er kannski erfitt að útskýra með orðum, en heilastarfsemin er betri. Heilinn okkar er eins og hybrid bíll, hann getur nýtt sér orku úr glúkósa og ketonum. Ég er að útvega honum báða orkugjafana með því að vera á mínu mataræði. Heilinn býr sjálfur til þann glúkósa sem hann þarfnast og svo hefur hann ketónana sem auka orkugjafa svo það er ekki skrítið að maður upplifi alla þessa orku og skýrleika í hugsun þegar maður er með 2 orkugjafa fyrir heilann. Mataræðið er komið í rútínu hjá mér núna og mér finnst það ekkert flókið eða mikið mál. Ég sakna þess ekki að borað sykur og á ekkert erfitt með að hafa sykursætar vörur fyrir framan mig og sleppa að borða þær. Mig langar bara ekki lengur í sykur. Það fylgir því mikið frelsi að vera ekki háður sykrinum, að geta valið hollar matvörur og vitað að maður er að næra líkama og sál á besta mögulegan hátt. Mér finnst ég eiginlega heppin að tilheyra þessum hópi fólks sem hefur tekið stjórn á eigin heilsu og það besta er að allir eru velkomnir í þennan hóp. Það er enginn sem stoppar þig nema þú sjálfur.“

Hvað viltu segja við þá sem treysta sér ekki í svona áskorun?

„Ég myndi segja þeim að byrja á því að kynna sér skaðsemi sykurs. Maður þarf nefnilega að vera tilbúinn andlega til að henda sykrinum út úr lífinu. Ég er á því að þegar fólk áttar sig á hvað sykur er skaðsamur heilsunni, sé auðveldara að halda sig frá honum.

September er fínn tími til að prófa sykurlaust líf. Sumum hentar að demba sér bara út í þetta og henda öllum sykri út. Aðrir vilja gera þetta hægt og rólega og byrja á að taka út sælgæti, kex og kökur, eða þessar augljósu sykurmatvörur. Ég held að það sjái enginn eftir því að hafa prófað sykurlaust líf. Maður veit ekki hvernig það er nema að prófa. Það er hægt að finna stuðningshópa á Facebook sem styrkja mann og hjálpa mikið.“

Upplifðir þú fráhvörfseinkenni frá sykri?

„Já vegna þess að ég demdi mér bara í Keto mataræðið strax í upphafi þá borðaði ég aðeins 20 g af kolvetnum á dag. Kolvetni binda vökva í líkamanum og þegar maður sker svona hressilega niður kolvetnin þá upplifði ég vökvaskortseinkenni til að byrja með. Það er hægt að koma í veg fyrir slíkt með því að vera duglegur að drekka, taka inn steinefnatöflur, sölt og fá sér súputening í heitt vatn.“

Hvernig bregst fólk við breyttu mataræði?

Ég verð ekki vör við mikil viðbrögð frá fólki í kringum mig. Þótt sumum finnist eflaust erfitt að vita ekki hvað megi bjóða mér upp á í matarboðum eða veislum. 

Fyrir mig er þetta ekkert mál. Mér er alveg sama þótt ég borði ekkert af veisluborðinu. Ég tek bara með mér mína sykurlausu kökusneið eða súkkulaðibita. Það er alltaf hægt að finna sykur- og kolvetnalausa valkosti í mat og drykk og úrvalið af slíkum vörum er alltaf að aukast í verslunum og á veitingastöðum.“

Arndís segir alltaf hægt að fá sér eitthvað sykurlaust í …
Arndís segir alltaf hægt að fá sér eitthvað sykurlaust í veislum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eitthvað að lokum?

„Það er alveg magnað hvað hægt er að gera sjálfur til að hámarka líkurnar á góðri heilsu. Ég trúi því að við þurfum ekki efni, lyf eða aðrar töfraformúlur, heldur einungis venjulegan hollan og næringarríkan mat sem er þannig samsettur að hann læknar líkama þinn og stuðlar að heilbrigðum efnaskiptum. 

Þú átt þennan eina líkama og það er í þínu valdi að næra hann rétt og minnka líkur á að hann þrói með sér efnaskiptavillu og aðra lífsstílssjúkdóma. Láttu matinn vera lyfið þitt og lyfið þitt vera matinn sem þú borðar!“

Langar þig að taka þátt í Sykurlausum september á Smartlandi? Vertu með okkur í Facebook-hópnum Sykurlaus september á Smartlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál