Bætiefni gegn sykurpúkanum

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. mbl.is/Árni Sæberg

„Nú stendur yfir átakið SYKURLAUS SEPTEMBER á Smartlandinu, þar sem hvatt er til þess að taka allan viðbættan sykur út mataræðinu. Stundum dugar hvatning ekki til og illa gengur að losa sig undan þeirri fíkn sem sykurneyslan veldur. Þá er gott að grípa til náttúruvöru, sem getur stutt þig í að losna við sykur úr líkamanum,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli: 

Bætiefni sem dregur úr sykurlöngun

Ef þér finnst þú ekki vera að sigrast á sykurpúkanum upp á eigin spýtur, geturðu nýtt þér bætiefnið GLUCOSE METABOLIC SUPPORT. Í því er blanda af völdum næringarefnum og jurtum sem stuðla að eðlilegum efnaskiptum sykurs og kolvetna.

Lykilhlutverki í þeirri blöndu gegnir indverska lækningajurtin Gymnema, sem hefur verið notuð frá örófi alda af Ayurvedískum læknum til að draga úr sykurlöngun og minnka sykurmagn í blóði. Þar sem hún hefur örvandi áhrif á efnaskipti líkamans, hefur hún mikið verið notuð í meðferðum við ofþyngd og fitulifur.

Í böndunni er einnig efnið Glucofit, sem samanstendur af corosolic acid. Rannsóknir hafa sýnt að það stuðli að eðlilegum efnaskiptum glúkósa í líkamanum. 

Fleiri næringarefni

Að auki eru í GLUCOSE METABOLIC SUPPORT ýmis fleiri næringarefni eins og króm, bíótín, B-1, B-5, L-glútamín, Alpha lipoic acid og vanadium. Öll þessi næringarefni eru mikilvæg fyrir efnaskipti glúkósa í líkamanum og stuðla að meira jafnvægi á blóðsykrinum.

Auk þess að búa yfir eiginleikum til að stuðla að viðgerð þarmaveggjanna er amínósýran L-glútamín talin draga úr sykurlöngun og koma jafnvægi á blóðsykur líkamans.

Króm er snefil­efni sem marga skortir, en það er talið mik­il­vægt stuðnings­efni fyr­ir virkni insúlí­ns og hefur þar af leiðandi áhrif á stjórnun blóðsyk­urs í líkamanum. Króm eyk­ur insúlí­nnæmni frumna og er nauðsynlegt í efna­skipt­um kol­vetna, fitu og próteina.

Alpha lipoic acid er öflugt andoxun­ar­efni og orkugjafi fyrir hvat­ber­a frumnanna (orkuframleiðsluhluta þeirra), en eyk­ur jafnframt insúlí­nnæmni svo frum­urn­ar geti auðveld­lega nýtt glúkósa til orku­mynd­unar.

GLUCOSE META­BOLIC SUPP­ORT er því gagn­legt og ómiss­andi bæti­efni til að sigr­ast á sykurpúkanum, koma jafn­vægi á blóðsyk­ur og halda syk­ur­löng­un í skefj­um.

Þú getur þátt í Sykurlausum september á Smartlandi á Facebook. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál