Viltu minnka bólgur í líkamanum?

Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringaþerapistli og höfundur bókarinnar Ketóflex.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringaþerapistli og höfundur bókarinnar Ketóflex.

„Það eru margar og góðar ástæður fyrir að setja heilsuna í fyrirrúmi. Það getur verið krefjandi að stunda vinnuna og áhugamálin og hugsa um fjölskylduna sína og sjálfan sig líka. Undir álagi og krísum er skynsamlegt að eiga auka innistæðu í orkubankanum og vera viðbúin afleiðingum af til dæmis yfirvinnu, tilfinningalegu álagi eða streitu. Eðlilega viljum við alltaf vera í topporku og hraust á líkamlega og sál og þannig standa sterkari í mótlæti. Það hefur kannski aldrei verið eins mikilvægt að vera það eins og einmitt núna. Á þessum „skrítnu tímum” sem hófust í vor, með innreið sinni með framandi vírus og hættunni á covid-19 smiti og meira eða minna alvarlegum veikindum. Við héldum og bundum vonir við, að „þetta“ yrði búið í sumar og allt yrði eins og áður. En þetta langt frá búið. Þvert á móti virðist vera aðkallandi að við sættum okkur við, að „þessir skrítnu tímar“ séu komnir til að vera,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir næringaþerapisti, heilsufrömuður, lífsráðgjafi og rithöfundur í pistli í Heilsublaði Nettó: 

Í leiðbeiningum landlæknis eru tilteknir einstaklingar með áhættuþætti fyrir alvarlegri covid-19 sýkingu og meðal þeirra eru eldri en 65-70 ára, þeir með hjarta- og æðasjúkdóma, langvinna lungnasjúkdóma, sykursýki tegund 1 og 2 og einstaklingar með offitu og hugsanlega barnshafandi konur.

Ég tel að við séum að axla ábyrgð og passa hvort annað og vöndum okkur að fylgja sóttvarnar ráðleggingum og -reglum meðal annars með að þvo hendur og spritta okkur og virða 2m regluna.

Mataræðið skiptir verulega miklu máli og það er engin undankomuleið ef þú vilt koma jafnvægi á blóðsykurinn, létta þig og styrkja forvarnir líkamans. Það þarf ekki að vera flókið en bara velja hollara og hreinna hráefni og losa sig við mat sem stelur orku og myndar bólgur í líkamanum.

Sumir álíta það öfgar að sneiða hjá sykri, viðbættum sykri og sykruðu gosi og söfum, svo ekki sé talað um hvítt brauð, grjón, kökur og kex og að borða smjör í staðinn fyrir unnar hertar jurtaolíur. Það er allt í lagi mín vegna. Við getum bara búið til enn eina fæðustefnu: Öfga mataræðið! Við verðum svo ægilega orkumikil og finnum fyrir minni verkjum í liðum og vöðvum og svo  minnkar magafitan. Nei ég er bara að grínast. Hér eru engar öfgar á ferð, bara eintóm skynsemi. Lágkolvetna fæði og hollt ketó mataræði í bland með reglulegri hreyfingu, útiveru og gæðasvefni og við erum tiltölulega vel sett. Alla vega betur en á sykri og eintómu brauði.

Nasaþefur að bólgustemmandi og styrkjandi hráefni:

Omega 3 fitusýrur. Bætir næmi insúlíns í frumum, jafnar blóðsykur, bólgustemmandi, gott fyrir minni og einbeitingu og streituviðbrögð. 

Matur; Til dæmis feitur fiskur; bleikja, sardínur, makríll, lúða, steinbítur.

Bætiefni: Omega 3 fiskiolía af góðum gæðum.

Prótein; Styrkir ónæmiskerfið, vöðva, boðefni í meltingarfærum og heila

Matur; Til dæmis fiskur, skelfiskur, harðfiskur, kjöt sérstaklega grasfóðrað íslenskt lambakjöt og villt, harðir ostar, skyr, cammenbert (veljum íslenskt).

Jurtaprótín er til dæmis quorn (frostvara) og edamame baunir, lífrænt soya og tofu.

Bætiefni: Hreint mysuprótínduft og kollagenduft, bætiefni sem innihalda innmat (lifur, hjarta osfrv).

Snefilefnið zink styrkir meðal annars ónæmiskerfið:

Til dæmis ostrur, egg, lamba lifur, tofu, hnetur, fræ -, sérstaklega graskersfræ og graskersolía, sveppir, spínat, spergilkál, baunaspírur.

Bætiefni: Zink piccolinate

A-vítamín styrkir ónæmiskerfið:

Matur: Til dæmis lamba lifur, gulrætur (betakaroten) grænt grænmeti einsg og til dæmis spínat og blaðgræna, sardínur og egg.

Bætiefni: Þorska lýsi, og A-vítamín hylki.

Andoxun og vítamín er  bólgustemmandi og styrkir ónæmiskerfið

Matur: Til dæmis spergilkál, spínat, blaðgrænt, aspas, kúrbítur, eggaldin, rauð paprikka, tómatar, shitake sveppur, maitake sveppur (til þurrkaðir), sólber, jarðaber, makríll, feitur fiskur, lamba og nauta lifur, ostur og eggjarauður.

Bætiefni: Acai ber, C- vítamín, D3- vítamín, járn sem Probi Járn

Góð meltingarflóra styrkir ónæmiskerfið

Matur; Til dæmis súrkál og mjólkursýrt grænmeti, þistilhjörtu, chia og hörfræ (útbleytt)

Bætiefni; Mjólkursýrugerlar t.d. Probi Mage, glucomannan trefjar

Það skiptir ekki öllu máli hvaða fæðustefnu þú fylgir. Aðalatriðið er, að maturinn sem þú borðar sé gæðaríkur og samsettur þannig, að hann geri sitt gagn fyrir líkamann allan og þar á meðal ónæmiskerfið.

HÉR er hægt að lesa Heilsublað Nettó en þar eru að finna uppskriftir frá Þorbjörgu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál