Varð A-manneskja og hefur sjaldan haft það betra

Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Sjávarklasans.
Berta Daníelsdóttir framkvæmdastjóri Sjávarklasans. mbl.is/Árni Sæberg

Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávarklasans, hugsar vel um heilsuna og er aldrei með neinar öfgar þegar kemur að henni. 

Hefur þú alltaf hugsað vel um heilsuna eða breyttist viðhorf þitt til hennar á einhverjum ákveðnum tímapunkti?

„Ég hef alltaf verið orkumikil og iðin en fyrir nokkrum árum fór ég að finna fyrir óþægindum tengdum ristli og meltingu. Eftir margra mánaða slen og leti að eigin mati fékk ég greiningu og tók þá mataræði og hreyfingu traustum tökum. Eitt af því sem ég kynntist fljótlega voru Probi Mage-mjólkursýrugerlar og áhrif þeirra. Eftir að ég fór að taka þá daglega snarbreyttist ristilheilsan mín og melting til hins betra sem skiptir mig miklu máli,“ segir hún.

Hvað finnst þér skipta mestu máli að gera til þess að vera sem hraustust?

„Að huga vel að svefninum og ristlinum. Fyrir fimm árum ákvað ég að hætta að vera B-manneskja og verða þessi eftirsótta A-týpa og það gekk eftir. Ég er mjög ákveðin í að vera sofnuð klukkan tíu á kvöldin og vakna yfirleitt um 6 á morgnana. Eftir þetta hef ég varla notað vekjaraklukku nema einstaka sinnum og er þá alltaf vöknuð áður en hún hringir. Andlega heilsan skiptir mig líka mjög miklu máli en þegar ég verð döpur eða niðurdregin þá finn ég það strax í meltingunni og tek mig taki. Faðir minn lést í vor eftir skammvinna baráttu við krabbamein og það ferli kenndi manni enn og aftur mikilvægi góðrar heilsu og ekki síður kosti þess að vera í andlegu jafnvægi til að takast á við slíkt verkefni hvort heldur sem maður er sjúklingur eða aðstandandi. Á haustin er svo gott að huga sérstaklega að ónæmiskerfinu og ég hef bætt við mig Probi Family-mjólkursýrugerlum sem styðja það, enda með mikla trú á þessum sænsku gerlum eftir svo góða reynslu af Probi Mage.“

Hver er morgunrútínan þín?

„Þar sem ég er frekar árrisul þá kemst ég yfir ansi margt áður en haldið er til vinnu. Ég er með ársgamlan hvutta sem fær nú mest að njóta mín á morgnana. Ég hef það fyrir reglu að festast ekki í tölvupóstum eða fréttum dagsins þegar ég vakna. Ég les frekar skemmtilega grein eða hlusta á podcast og stundum spila ég tölvuleik, já ég hef ennþá gaman af Nintendo-tölvunni minni. Í mínum huga er nauðsynlegt að fara rólega út í daginn og leyfa svo erlinum að taka við,“ segir Berta.

Hvað borðar þú á hverjum degi?

„Ég drekk ekki kaffi en finnst ískalt kók mjög gott og er það minn koffíngjafi, með sykri og alles. En síðan borða ég alltaf gríska jógúrt með múslí og smá agave-sírópi og þeim berjum eða ávöxtum sem til eru þann daginn í ísskápnum áður en ég fer út í daginn. Suma morgna er það samt gamla góða Cheerios-ið sem fær að njóta sín með ískaldri nýmjólk, og svo tek ég mjólkursýrugerlana mína góðu. Ætli ég borði ekki harðfisk daglega, lifrarpylsu flesta daga og skola þessu alltaf niður með mjólk. Á meðan vinkonurnar eru á kafi í safakúrum og slíku þá borða ég bara venjulegan mat en ég hef mjög gaman af eldamennsku og er ævintýragjörn í tilraunum mínum.“

Stundar þú líkamsrækt?

„Á sumrin hreyfi ég mig bara úti í náttúrunni og myndi aldrei nenna inn á líkamsræktarstöð en á veturna eru það helst heitir tímar og jóga sem ég fer í til að ná góðum teygjum og andlegri slökun. Núna stefni ég á að taka eitthvert ofurnámskeið og koma mér í enn betri gír en ég finn að náttúrulega formið sem ég hef alltaf haldið í er farið að láta undan og elli kerling læðist að með alls konar skrýtnum kvillum,“ segir hún og bætir við að hún fari út að ganga með hundinn sinn daglega.

„Hann fær að hlaupa frjáls og ég get gleymt mér í dagdraumum og pælingum. Á veturna tek ég yfirleitt einhver líkamsræktarnámskeið og þá er ég að mæta 3-5 sinnum í viku. Ég reyni alltaf að fá námskeið á morgnana.“

Finnst þér skipta máli að vera í góðu jafnvægi og formi vegna vinnunnar?

„Það skiptir mig gríðarlega miklu máli að vera í góðu jafnvægi í vinnunni minni. Ég er alltaf á einhverri hreyfingu allan daginn en ég hefði ekki þessa orku og kraft sem þarf í mitt starf ef ég sinnti ekki andlegu og líkamlegu hliðinni. Fyrir mér er líkamsrækt svo miklu auðveldari og skemmtilegri þegar andlega hliðin er í góðu jafnvægi. Ég fer nokkuð reglulega til sálfræðings og tappa af mér öllum glundroða og ræði málin við hana, svona til að forða börnum mínum og vinum frá tuðinu mínu.“

Ertu búin að skipuleggja veturinn og hvað verður efst á baugi?

„Ég skipulegg mig yfirleitt ekki langt fram í tímann, læt hlutina svona frekar gerast en þó ætla ég að kenna haustönn í nýju spennandi námi hjá Sjávarakademíunni ásamt því að sinna mathöllunum og Sjávarklasanum. Ef Covid fer að réna þá mun ég án nokkurs vafa skella mér aftur í sólina en mér þykir afskaplega gott að komast ein í frí í svona vikutíma og aftengja mig alveg frá daglegum erli. Síðan munum við Stormur halda áfram að kanna lendur Hafnarfjarðar inn að Krýsuvík og finna nýja leynistaði í berjamó í leiðinni.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál