Kaffi er ekki leiðin til að viðhalda réttu rakastigi líkamans

Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti.
Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gat nú verið, komið haust og veturinn fram undan. Þetta gerist víst á hverju ári en einhvern veginn er ég alltaf jafn hissa á að sumarið sé bara búið! 

En samt, veturinn er líka frábær og einstaklega góður tími til að huga að heilsunni og hlúa vel að sér. Mér finnst líklegt að þessi vetur verði enn betur til þess fallinn en venjulega, einfaldlega vegna þess að við höfum kannski ekki um margt annað að hugsa. Við getum sett alla athygli á okkur sjálf, heilsuna okkar og þeirra sem við elskum.

Eitt af því sem er mikilvægt á veturna er að huga að bætiefnainntöku og núna er einstaklega mikil ástæða til að styðja við ónæmiskerfið á alla hugsanlega vegu!

Vinsælasta trendið í vítamínum í vetur verða klárlega freyðitöflur og duft til að setja út í vatn. Meira að segja hið geysivinsæla collagen er komið í freyðitöflum! Hversu geggjað!

Athugið bara að velja gæði. Veljið freyðitöflur sem eru með náttúrulegum bragð- og litarefnum, án aukefna og sem eru ekki með miklum sykri eða einhverri ógeðs gervisætu.

Freyðitöflur eru einstaklega bragðgóð og þægileg leið til að taka inn bætiefni og einnig hvatning til að drekka meira vatn, sem er frábært því það vantar mjög oft mikið upp á að daglegri vökvaþörf sé fullnægt. Kaffi er ekki leiðin til að viðhalda réttu rakastigi líkamans. Þið vitið það nú alveg er það ekki?

Það eru ýmis bætiefni sem skipta enn meira máli á veturna en á öðrum árstíma. Auðvitað þarf hver og einn aðeins að þarfagreina sjálfan sig, finna út hvað passar og ekki hlaupa bara eftir næstu auglýsingu um einhverja kraftaverkapillu sem á að bjarga heilsunni. Höldum okkur dálítið við það sem skiptir máli, lífsnauðsynleg vítamín, steinefni, fitusýrur og þannig lykilbætiefni.

Þetta eru þau helstu sem ég mæli með í vetur:

D-vítamín – Að sjálfsögðu! Stóran hluta þjóðarinnar vantar D-vítamín, það er þekkt staðreynd. D-vítamín er nauðsyn öflugu ónæmiskerfi, fyrir gleðina og sterkar taugar, fyrir bein og tennur og haldið ykkur til að stuðla að réttum efnaskiptum og eðlilegri líkamsþyngd.

Magnesíum – Já! Nauðsyn fyrir slökun, svefn, ró og frið í sálinni. Einnig til að koma í veg fyrir sinadrætti, fótaóeirð og krampa.

Steinefni og sölt – Fyrrnefndar freyðitöflur eru margar stútfullar af steinefnum og söltum. Nauðsyn til að halda fullri orku, góðu rakajafnvægi og koma í veg fyrir þreytuköst og orkufall. Þessi efni eru nauðsyn öllum aldursflokkum og öllum tegundum af fólki. Íþróttafólk, eldri borgarar, skiptir ekki máli. Allir þurfa steinefni og sölt.

C-vítamín og önnur andoxunarefni – Algjör nauðsyn í vetur! Frábær fyrir ónæmiskerfið og til að efla líkamann til dáða í vörnum gegn umgangspestum. Ég mæli með að kaupa eina tegund bætiefnis sem inniheldur góðan skammt af C-vítamíni, en einnig öðrum andoxunarefnum líkt og sinki og seleni. Þessi efni vinna best saman að sterku ónæmiskerfi.

Omega-fitusýrur – Grunnur góðrar heilsu! Omega 3 fyrir liðina, gegn bólgum og fyrir andlega heilsu og styrk. Omega 7 fyrir húðina til að verjast kulda og þurrki og að ekki sé talað um fyrir alla slímhúð.

Góðgerlar fyrir meltinguna (asídófílus) – Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hve heilbrigð þarmaflóra er mikilvæg góðri heilsu. Góðgerlar eru mikilvægir fyrir heilbrigða meltingu, öflugt ónæmiskerfi og góða andlega heilsu svo eitthvað sé nefnt. Munið einnig, ef svo óheppilega vill til að þið þurfið að taka inn sýklalyf í vetur, þá er gott að taka inn góðgerla samhliða þeim svo meltingin fari nú ekki í skrall með sveppasýkingum og tilheyrandi veseni. Það eru til sérstakir gerlar í apótekum til að taka inn með sýklalyfjunum.

Tökum svo glöð á móti þessum vetri, það gengur allt miklu betur þannig. Hugsum vel um okkur og gerum allt sem við getum til að láta okkur líða vel.

Svo kemur aftur vor ...

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál