Sjö ráð til að temja sér jákvæðni á tímum kórónaveirunnar

Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching.
Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching. Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

„Yfirskrift pistilsins kann að orka tvímælis en eins og Eleanor H. Porter benti á í bókinni um Pollýönnu, getum við alltaf fundið eitthvað til að gleðjast yfir óháð aðstæðum. Tilvísunin í Pollýönnu á rétt á sér enda voru aðstæður Pollýönnu allt annað en ákjósanlegar og skilaboð bókarinnar eiga því vel við. Hér á eftir koma sjö ráð handa þeim sem vilja temja sér jákvæðni á þessum sérkennilegu tímum þar sem daglegt líf flestra er gjörbreytt,“ segir Edda Jónsdóttir leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching í sínum nýjasta pistli

1. Farðu að hlæja

Nýlega heyrði ég viðtal við uppistandarann og leikkonuna Tiffany Haddish sem lýsti því yfir að hlátur væri nudd fyrir líffærin. Einnig hefur verið sýnt fram á að hlátur dregur úr streitu. Rannsóknir sýna jafnframt að þegar við lyftum munnvikunum, byrjar líkaminn að framleiða gleðihormón. Svo ef þér er ekki hlátur í huga geturðu byrjað á að þvinga fram bros og áður en langt um líður ferðu að öllum líkindum að hlæja.

Fyrsta ráðið er: Farðu að hlæja að minnsta kosti einu sinni á dag. Horfðu á fyndið myndskeið. Talaðu við skemmtilegan vin eða fjölskyldumeðlim. Lestu brandarabók eða hugsaðu um eitthvað sem þér þykir spaugilegt. Ef þú deilir heimili með öðrum, geturðu einnig deilt gleðinni með nærstöddum.

2. Gerðu vinnudaginn skemmtilegri

Nú þegar margir vinna heima og félagsleg samskipti eru takmörkuð er ágætt að spyrja sig eftirfarandi spurninga: Hvernig getur vinnudagurinn orðið skemmtilegri? Hvað veitir okkur ánægju í dagsins önn? Hvernig getum við sett mörk þannig að við finnum þennan gullna meðalveg milli vinnu og einkalífs, svefns og vöku, virkni og hvíldar?

3. Slakaðu á

Langvarandi streita getur leitt til kulnunar. Þrátt fyrir að þetta séu alls ekki nýjar fréttir er staðreyndin sú að fjöldi fólks er undir miklu álagi. Margir eru einnig háðir því að hafa „nóg að gera“, enda er það hin æðsta dyggð íslensks samfélags. (Ég byggi þessa skoðun mína á óvísindalegri þátttökukönnun sem felst í fjölda skipta sem ég er spurð og heyri aðra vera spurðir að því hvort ekki sé „alltaf nóg að gera“.)

Ráð númer þrjú er: Reyndu að slaka á inn á milli. Gerðu slökunaræfingar, hlustaðu á slökunartónlist eða leggðu þig í smá stund.

4. Veldu orð þín vel

Orðaval okkar endurspeglar oft líðan okkar. Notum við orðalag eins og: „Ég þarf að...“ „Ég verð að fara að...“ „Ég ætti nú að...“ 

Mér finnst ágætis æfing að fylgjast með eigin orðræðu og veita orðum mínum athygli.

Hvað segi ég við sjálfa mig og jafnvel upphátt um sjálfa mig? Þetta getur verið mjög lærdómsríkt ferli auk þess sem þarna liggja oft tækifæri til breytinga.

Ráð númer fjögur er: Veldu orð þín af kostgæfni og reyndu að tileinka þér jákvætt orðfæri.

5. Auðsýndu þakklæti

Á tímum sem þessum er auðvelt að gleyma því sem gott er. Nú er þó enn mikilvægara en ella að auðsýna þakklæti fyrir það góða í lífi okkar. Hvað getur þú þakkað fyrir?

Ráð númer fimm er: Skrifaðu þakklætislista og mundu eftir að þakka fólkinu í kringum þig. Þetta á við bæði um vinnufélaga, viðskiptavini, fjölskyldumeðlimi og vini.

6. Sjáðu breytingar sem jákvæðar

Breytingar hafa afar slæmt orð á sér. Margir upplifa að breytingar séu erfiðar og að þær beri að forðast. En í rauninni er það svo að það eina sem er víst er að allt breytist.

Á tímum kórónaveirunnar hafa velflestir þurft að gera breytingar á daglegu lífi sínu. Ráð númer sex er því: Skoðaðu líf þitt og taktu eftir hvaða breytingar eru til hins betra. Hvaða breytingar eru tímabundnar og hverju viltu breyta til frambúðar?

7. Vertu jákvæð fyrirmynd

Margir hugsa um fyrirmyndir sem ákveðinn hóp fólks, eins og til dæmis afreksíþróttafólk. Staðreyndin er þó sú að flest nefnum við fólk sem við þekkjum vel þegar við erum beðin að lýsa fyrirmyndum okkar. Þá koma okkur nánir ættingjar eða samstarfsfólk gjarnan til hugar.

Ráð númer sjö: Vertu jákvæð fyrirmynd fyrir fólkið í kringum þig. Áhrif þín eru meiri en þig grunar. Eða eins og Gandhi sagði: „Vertu breytingin sem þú vilt sjá í heiminum“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál