Hvernig viltu hafa nýja lífið þitt á litinn?

Guðrún Kristjánsdóttir.
Guðrún Kristjánsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Áhugi á því að hafa það kósí heima hefur líklega aldrei verið meiri. Á meðan mörgum nægir að fara nokkra safaríka hreingerningarhringi hafa aðrir þörf fyrir að skipta um liti heima hjá sér eða gera eitthvað miklu miklu meira. Það að mála heimilið getur út af fyrir sig verið frábær hugleiðsla og þegar kemur að því velja liti hafa jógavísindin sitthvað til síns máls um hvað fer þér og þínum innri manni eða konu best,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, annar eigandi Systrasamlagsins, í sínum nýjasta pistli á Smartlandi: 

Ef þú ert til dæmis ríkjandi vata-líkams- og hugargerð eru litir þínir bláir, svartir, indígó, bleikir og fjólulitir, eins og himingeimurinn. Ef þú ert eldheit pitta höfða gulir, rauðir og appelsínugulir eða litir sólarinnar mest til þín. Ef þú ert hins vegar hin jarðtengda kapha-líkams/hugargerð eru litirnir fölari. Dæmi um það eru ljósgulir, grænir, beige og ljósir tónar. (Taktu prófið til að kynnast þér betur).

Ekki er þó allt sem sýnist því jógavísindin telja að best sé að þú dragir úr „þínum litum“ til að halda góðu jafnvægi. Til dæmis ætti pittan alls ekki að mála í eldrauðu, gulu eða appelsínugulu. Það eykur á óróleika eldsins. Það sama gildir um ríkjandi vata-elementið þegar kemur að himnalitunum. Hún ætti miklu fremur að snúa sér að jarðnesku tónunum.

Sjávarlitirnir róa pittuna

Þær sem eru ríkjandi pitta-persónuleikar geta verið mjög skipulagðar og vilja gera allt fullkomlega. Þær eru jafnan fljótar að velja lit/i og flækjustigið er ekki mikið. Pitturnar eru hreint ekki á móti sterkum litum en ættu heldur að nota tækifærið og róa eldinn og mála í köldum litum fremur en heitum. Sjávarlitirnir, sem eru gráir, hvítir, bláir og grænir, róa eld pittunnar án þess að draga úr henni sköpunarkraftinn.

Vata-breytileikinn

Vata-týpurnar búa yfir mikilli hugmyndaauðgi og elska mest allra að breyta til. Þær myndu vilja mála í öllum regnbogans litum og gera það oft, en jógavísindin mæla heldur með einfaldleika fyrir þær. Þ.e. þar sem vöturnar eru sveiflukenndar og víðáttumiklar eins og himinninn er þeim ráðlagt að halda sig frá litum himingeimsins. Þeim er bent á meiri jarðarliti eins og rautt, appelsínugult, gult og grænt. Litir sólarinnar hita upp vötunar og sá græni heldur þeim í tengingu við móður jörð.

Kapha þarf að vera djörf

Þar sem kapha er afar jarðbundin er ekki mælt með því að sú líkams/hugargerð máli í grænum, brúnum eða rústik litum. Kapha þarf kraftmikla og djarfa liti til að lyfta sér upp og ætti að halda sig við bjarta tóna.

Geturðu ekki ákveðið þig? 

Þá er ágætt að upplýsa að hvítt róar allar líkams/hugargerðir en svartur dregur í sig hita og getur haft truflandi áhrif á okkur flest, þ.e. ef svart er notað í miklum mæli. Jógavísindin bæta við og segja að ef þú átt mikið af svörtum hlutum eða skarti ættirðu að geyma þá í björtu herbergi. Þetta snýst jú allt um orku. Flestar af þessu sömu pælingum er ágætt að hafa í huga þegar þú ert að hugsa um hvaða fatnaður fer þér best, eða jafnvel matur meltist vel. Þar geta litir haft mikið að segja. En það er efni í annan pistil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál