Versta gjöf Lindu P. frá gömlum kærasta

Linda segir jólin einstaklega góðan tíma en engin afsökun til …
Linda segir jólin einstaklega góðan tíma en engin afsökun til að viðhalda markmiðum sínum. Ljósmynd/Ásta Kristjánsóttir

Linda Pétursdóttir, athafnakona, fyrrverandi Ungfrú heimur og lífs- og þyngdartapsráðgjafi á Íslandi um þessar mundir, verður á heimili sínu á Álftanesi á jólunum og segist taka desembermánuði fagnandi þar sem hann skipti fjölskyldu hennar miklu máli. 

„Desember er stór mánuður í minni fjölskyldu. Við systkinin þrjú eigum öll afmæli í desember, önnur mágkona mín og þrjár bræðradætur. Þannig að við erum sjö afmælisbörn í desember, auk þess eiga foreldrar mínir brúðkaupsafmæli  og svo eru jólin auðvitað á þessum tíma líka.“ 

Alin upp við hefðbundin íslensk jól

„Ég er alin upp við hefðbundin íslensk jól þar sem jólatréð var sett upp á Þorláksmessu og allt var mun lágstemmdara en það er í dag. Ég á ekkert nema góðar minningar úr æsku í kringum jólin. Við klæddum okkur upp á í sparifötin og jólin voru hringd inn með  jólamessunni á rás 1. Þannig er það reyndar enn í dag, sama hvar í heiminum við erum, að partur af hefðinni er að hlusta á messuna á RÚV. Við Ísabella mín höfum útbúið okkar eigin hefðir og njótum þessarar hátíðar báðar tvær.“

Linda segir að búseta hennar í Bandaríkjunum og Kanada hafi án efa áhrif á það hvernig hún heldur jólin í dag.

„Ég hef eflaust sankað að mér hefðum, sér í lagi frá Bandaríkjunum og Kanada og þá helst í formi þess að byrja að skreyta snemma. Einnig erum við með hefðina að hafa jólasokka á amerískan máta og að opna þær gjafir í náttfötunum á jóladagsmorgun meðan við sötrum heitt kakó. 

Önnur hefð er sú að við mæðgur viljum helst vera í nýju jólanáttfötunum okkar á aðfangadagskvöld og gerum það ef við erum tvær, en þegar foreldrar mínir eru hjá okkur í mat klæðum við okkur upp á. Pabba fannst það heldur furðulegt að hafa okkur mæðgur á náttfötunum í jólamatnum, þannig að við tökum tillit til þess og klæðum okkur upp á fyrir þau, en förum svo bara í náttfötin sem fyrst á eftir.“

Hugar að heilsunni alltaf

Hugsarðu um heilsuna á jólunum?

„Mín heilsuheimspeki er hluti af mínum daglega lífsstíl, óháð árstíðum.“

Linda segir að jólin á Húsavík hafi verið yndislegur tími með stórfjölskyldunni. 

„Við fórum til afa og ömmu úr báðum ættum þar sem allir komu saman. Við vorum með laufabrauðsgerð, sögustundir og aðrar notalegar minningar sem gott er að ylja sér við.“

Hvað gerir þú aldrei á jólunum?

„Ég reyni að forðast að lifa eftir orðunum „aldrei“ og „alltaf “ því þær áherslur geta breyst eins og ég og því hef ég tamið mér að halda mig við milliveginn en ætli það sé ekki helst að ég neyti ekki kjöts úr dýraríkinu.“

Ekki allar gjafir jafn góðar

Hver er besta gjöfin sem þú hefur fengið á jólunum?

„Það er allt sem dóttir mín hefur útbúið handa mér sjálf. Svo platan Litli Mexíkaninn með Kötlu Maríu sem ég fékk að mig minnir árið 1981. Ég man hvað ég var yfir mig ánægð með gjöfina, ég fékk að vaka fram eftir, spilaði plötuna á Ferguson-plötuspilaranum sem pabbi og mamma höfðu keypt í Kaupfélaginu og þótti nú aldeilis flottur. Ég sat með stór heyrnartól og spilaði og söng eins og enginn væri morgundagurinn.“

En sú versta?

„Ég fékk svo hallærislega jólagjöf frá kærasta eitt sinn að ég get ekki sagt frá því hér, af tilliti við hann.“

Gerir þú eitthvað fyrir þig sérstaklega á jólunum?

„Aðallega að slaka á, vera í núinu og njóta einfaldleikans. Mér finnst gott að slaka á, lesa bók og leyfa mér að taka blund. Við spilum og hlustum á fallega tónlist. Svo er hressandi að fara saman í göngutúr með hundana. Mér finnst þessi tími töfrum líkastur og ekki verra ef maður er ástfanginn á jólum. Það er ákveðin rómantík og gleði í loftinu á þessum árstíma.“

Millibitar ekki nauðsynlegir

Áttu ráð fyrir fólk sem vill forðast það að þyngjast um jólin?

„Jólahátíðin nálgast hratt og henni fylgja oft ansi margar ástæður til að sleppa sér í ljúffengum mat og drykk. Ef þú vilt markvisst skipuleggja þig og fyrirbyggja þyngdaraukningu og vanlíðan sem fylgir ofáti, þá eru hér nokkur ráð frá mér til að halda þér á beinu brautinni.
 
Þú þarft ekki á millibitum að halda. Slepptu þeim alveg. Heilinn mun eflaust segja þér að þú munir deyja samstundis látir þú ekki eftir þér að fá þér, en trúðu mér, þú lifir það af! Þetta snýst um að vera meðvitaður um hugsanir sínar og langanir. Leyfðu löngun að fara í gegn án þess að svara henni með mat. Fáðu þér heldur vatnsglas og bíddu í 15 mínútur. Ef þú ert enn svöng/svangur þá færðu þér að borða. Annars ekki. Stundum erum við einfaldlega þyrst þegar við teljum okkur vera svöng.
 
Næring er undirstaða heilsunnar. Þess vegna er mikilvægt að hugsa um það sem við setjum ofan í okkur og hvaðan það kemur. Í hvert sinn sem við borðum eða drekkum ættum við að spyrja okkur: „Mun þetta hafa jákvæð eða neikvæð áhrif á líkama minn?“  
 
Gerðu skriflegt matarplan. Skrifaðu niður daginn áður hvað þú ætlar nákvæmlega að borða og drekka næsta dag, og farðu að fullu eftir því. Útbúðu matarplan sem gerir þér líkamlega gott. Reyndu að ákveða svokallaðan „matarglugga“ sem er sá tími sem þú ætlar að borða og þar með „fasta með hléum“, sem er tíminn utan matargluggans. Sem dæmi gætirðu ákveðið að matarglugginn þinn sé frá átta um morgun til átta að kveldi, sem eru tólf tímar, og þá fastarðu í aðra tólf tíma. Prufaðu þig áfram og finndu út hvað hentar þér best. Stattu með sjálfri/sjálfum þér og taktu ábyrgð. Með því að ákveða fyrirfram notarðu framheilann til að taka bestu ákvörðunina fyrir framtíðarsjálfið þitt í stað þess að láta undan frumheilanum sem vill umbun strax! Þú lærir smám saman að standa með sjálfri þér og virða eigin ákvarðanir. Og þú munt uppskera árangur.

Fyrir þá sem vilja léttast, eða ekki bæta á sig, er kjörið að fá sér súperdrykk (ofurþeyting) í staðinn fyrir máltíð. Þetta er bæði einföld og áhrifarík leið til þess að halda aukakílóunum í skefjum yfir hátíðirnar. Þú einfaldlega skiptir út einni máltíð fyrir einn súperdrykk. Það er gott að neyta hans í morgun- eða hádegisverð, og mörgum finnst það vera besta leiðin til að halda sér á beinu brautinni. Að hefja daginn á hollustubombu eins og þessir súperdrykkir eru hjálpar flestum að velja betri og hollari mat yfir daginn. 

Upplagt að hafa 28 daga heilsuáskorunina með í gegnum hátíðirnar, og fá sér einn súperdrykk á dag. Þá veistu að þú færð þér hollustubombu í eina máltíð og getur þá leyft þér að njóta seinni máltíða án samviskubits.“

Áttu góða uppskrift sem þú ert til í að deila með lesendum?

„Það eru svo margar góðar uppskriftir að alls kyns kræsingum að ég vil helst benda fólki á að fá sér einn súperdrykk á dag og auka við grænmeti. Þess vegna læt ég fylgja hér með uppskrift að einum slíkum, gott á móti öllu átinu og sætindunum sem eru í boði.“

Jarðarberja- og goðaberjaþeytingur
 

Þeytingar eru auðveld, fljótleg og áhrifamikil leið til að gefa líkamanum orku og hlaða hann af miklu magni næringarefna. Með því að bæta næringarríkri ofurfæði út í blönduna eykurðu næringargildi hennar til muna. 

Goðaber (goji ber) búa yfir átta mikilvægum amínósýrum og geta styrkt ónæmiskerfið, viðhaldið blóðsykursgildum og dregið úr liðagigtarverkjum. 

Þessi þeytingur er stútfullur af sykursnauðum berjum og stuðlar að því að halda blóðsykri og insúlíngildum í skefjum. 

Innihald:

2 msk þurrkuð goðaber

1 msk chiafræ

1 bolli snyrt jarðarber

1 frosinn banani

2 bollar möndlumjólk

1/2 tsk hunang (ef fólk vill)

handfylli af klökum 

Aðferð:

Allt sett í blandara og þeytt saman þangað til drykkurinn er orðinn silkimjúkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál