„Afreksíþróttir draga frekar úr langlífi heldur en hitt“

Evert Víg­lunds­son.
Evert Víg­lunds­son. Ljósmynd/Aðsend

Evert Víglunds, stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavík er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Evert átti eins og aðrir eigendur líkamsræktarstöðva vægast sagt skrýtið ár í fyrra.

„Rekstrarlega séð er mitt fyrirtæki á góðum stað. Við höfum verið skynsöm og ef ég ætti að kenna einhverjum eitthvað sem er að fara í rekstur, væri það að byrja smátt og leyfa rekstrinum að vaxa. Frekar en að taka einhver bankalán og fara fram úr sér. En auðvitað er erfitt þegar lokað er bara á stærsta hlutann af tekjunum. Það renna að jafnaði 800 manns í gegnum stöðina á hverjum degi og nú er það bara ekki neitt. Svo komu líka gífurlega margir túristar í stöðina sem keyptu vörur og þjónustu. Það sagði mér einhvern tíma leigubílstjóri að Crossfit Reykjavík væri næstvinsælasti staðurinn fyrir túrista í borginni á eftir Hallgrímskirkju. Það var yfirleitt fullt hús af útlendingum og biðraðir í tíma hjá erlendu fólki. Það vita allir í Crossfit-heiminum af stöðinni. Ég held að það sé út af Annie Mist, sem er klárlega fyrsta ofurstjarnan í íþróttinni í heiminum.“

Evert byrjaði með Crossfit Reykjavík áður en Crossfit var orðið þekkt fyrirbæri og fyrst um sinn þurfti að hafa verulega mikið fyrir því að halda starfseminni gangandi.

„Ég og Hrönn sem byrjuðum með fyrirtækið eftir að hún hafði verið með aðstöðu í bílskúrnum hjá sér gengum í öll störf og mættum hálfsex á morgnana og vorum að skúra hálftíu á kvöldin. Það var þannig í allavega tvö ár og það var ekki verið að greiða mikil laun. Þeir sem hafa byrjað eitthvað alveg frá grunni þekkja að fara í gegnum svona tímabil. Og okkar nálgun var frá byrjun sú að það voru alltaf allir velkomnir frá byrjun og það var nálgunin okkar. Crossft er rándýrt fyrirbæri í Bandaríkjunum og á mörgum öðrum stöðum og í raun munaðarvara og við vildum alls ekki fara þá leið.“

Evert, sem er þekktur fyrir að vera mikill heilsupælari og hefur hjálpað fólki að bæta heilsu sína í áratugi, segist sjálfur vera byrjaður að hugsa meira um langlífi. Borða minna og sjaldnar, hlúa vel að svefninum og öllu sem heitir endurheimt.

„Afreksíþróttir draga frekar úr langlífi heldur en hitt og geta í raun verið heilsuspillandi ef fólk er komið á hæsta „level“ og er að leggja óhóflega mikið á líkamann. Langlífi og afreksíþróttir eru upp að vissu marki andstæður."

Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir það hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt margt fleira.

Hér er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni á YouTube:


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál