Hvernig líður þér?

Kristín Hrefna Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Flow.
Kristín Hrefna Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Flow.

„Bara vel“ er svolítið eins og autoreply við spurningunni: Hvernig líður þér? Stundum skiljanlega enda hefjast mörg samtöl með þessum orðum og maður vill kannski ekki skutla gusunni af pirringi eða erfiðleikum dagsins framan í viðmælandann svona óforvarendis. Það er þó skiljanlegt að margir upplifi erfiðleika á þessum undarlegu tímum og kannski þarf að finna nýjar leiðir til að vinna úr þeim erfiðleikum,“ segir Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Flow í sínum nýjasta pistli: 

Knúsfúsir krúttspaðar sem og þeir sem eru örlítið lokaðri hafa þurft að finna nýjar leiðir til þess að upplifa nánd og kærleika unanfarið ár. Þeir eru kannski á síðustu dropunum og á barmið þess að kvæsa á samstarfsmenn sína á næsta fjarfundi þó að þeir eigi það alls ekki skilið. 

Erfiðar eða flóknar tilfinningar þurfa þó ekki að safnast upp hjá manni þó og kannski er kominn tími til að leita nýrra leiða til þess að fá útrás fyrir þær. Hugleiðsla er frábær leið til þess að glíma við hugann og tilfinningar hjartans en getur verið erfitt að byrja þegar allt er komið í knút. 

Það eru margar leiðir til þess að hugleiða og aðeins ein þeirra krefst þesss að þú sitjir kyrr með fæturna pakkaða í saltkringlu og reynir að hemja hugann. Það getur verið mjög erfitt að ætla sér það þegar maður er leiður, hræddur eða stressaður og kannski svolítið eins og að ætla sér beint upp úr sófanum og snakkpokanum á Everest. 

Hvort sem maður er ofurmeðvitaður jóga- og hugleiðsluiðkandi eða bara alls ekkert á þeirri bylgjulengd er það góð hugmynd að spyrja sjálfan sig að því daglega: hvernig líður mér? Og gæta þess að svara ekki á autoreply „bara vel.“ Það er hressandi að svara sjálfum sér heiðarlega og finna fyrir gleði, pirringi eða hverju sem kann að gerast þá stundina innra með manni. 

Þegar maður veit hvernig manni líður er aðveldara að finna hvað mann vantar og því er næsta spurning sem gott er að spyjar sig: hvað viltu finna í hugleiðslu dagsins? Og svo er hægt að spyrja sig að því hverju maður vilji sleppa tökunum af. Til þess að finna hugleiðslu við hæfi eru ótal hugleiðsluöpp sem bjóða upp á stuttar hugleiðslur til að nota þegar þú gefur þér stund til þess að huga að sjálfum þér. Flow Meditation er til dæmis ókeypis fyrir snjallsíma og þar geturðu fundið hugleiðslur sem eru aðeins 4 mínútur. 

Með þessum þremur spurningum kemstu nær því að skilja hvernig þér líður og vera meðvitaður um þau skref sem þú villt taka til þess að breyta stöðunni. 

Hvernig líður þér?

Hvað viltu finna?

Hverju viltu sleppa tökunum af?

Meðvituð um áhættuna á því að hljóma eins og misjafnlega-alvitur-amerískur-mark- og lífsstíls-leiðtoga-þjálfari skrifa ég samt um þessar spurningar því þær eru gagnlegar en virka auðvitað best ef maður er heiðarlegur við sjálfan sig og finnur sér leiðir til þess að grípa til aðgerða í eigin lífi. Það er kannski betra en að gubba eigin gremju yfir saklausa fundargesti hinu megin á fjarfundarlínunni sem eiga líka nóg með sig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál