Henti baðvigtinni og sér ekki eftir því

Jessica Simpson henti baðvigtinni og hætti að pæla í þyngd …
Jessica Simpson henti baðvigtinni og hætti að pæla í þyngd sinni. PHIL McCARTEN

Söngkonan Jessica Simpson hefur ekki hugmynd um hvað hún er þung um þessar mundir. Simpson henti baðvigtinni á heimili sínu fyrr á þessu ári. 

„Ég hef ekki hugmynd um hvað ég er þung. Mig langaði bara að líða vel og geta rennt upp buxunum mínum. Ef ég get það ekki, þá á ég aðra stærð. Ég á allar stærðir,“ sagði Simpson í viðtali við Hoda Kotb á dögunum. 

Simpson segir að hún hafi reynt sitt allra besta til að láta stærðina sína stjórna því hvernig hún skilgreinir sjálfa sig. Simpson fór í heilsuátak eftir að hún eignaðist dóttur sína Birdy árið 2019 og léttist um 45 kíló það ár. 

Simpson fór í heilsuátak eftir að hún eignaðist dóttur sína …
Simpson fór í heilsuátak eftir að hún eignaðist dóttur sína Birdy árið 2019. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál