Drakk áfengi á hverju kvöldi

Gwyneth Paltrow þyngdist um 6 kíló á tímabilinu.
Gwyneth Paltrow þyngdist um 6 kíló á tímabilinu. AFP

Leikkonan og heilsugúrúinn Gwyneth Paltrow drakk viskí á hverju kvöldi í heimsfaraldrinum. Til að komast í gegnum útgöngubann hristi hún í kokteil á hverju kvöldi og lagaði góðan mat. 

„Ég drakk mörg kvöld í viku og gerði pasta og borðaði brauð. Ég fór algjörlega út af sporinu. Ég meina; hver drekkur marga drykki mörg kvöld í viku? Það er ekki heilsusamlegt. Ég elska viskí og ég geri magnaðan drykk sem ég kalla Buster Paltrow, sem ég nefndi eftir langafa mínum sem elskaði viskí sour-drykki. Og síðan er þetta geggjaða kínóaviskí frá brugghúsi í Tennessee, með hlynsírópi og sítrónusafa. Það er bara himnaríki. Ég drakk tvo svoleiðis á hverju kvöldi,“ sagði Paltrow í viðtali við The Mirror

Á þessu tímabili þyngdist hún um rúm sex kíló. 

Paltrow segir að þótt hún hafi drukkið áfengi velflest kvöld vikunnar hafi hún ekki drukkið sig í óminnisástand. Áfengið hafi þó gert það að verkum að hana langaði til að reykja sígarettur. „Ég sakna þess,“ sagði leikkonan.

Paltrow segist ekki hafa drukkið sig í óminnisástand öll kvöld …
Paltrow segist ekki hafa drukkið sig í óminnisástand öll kvöld en að hún hafi fundið fyrir löngun í sígarettur þegar hún var komin í glas. Jon Kopaloff
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál