„Ákvað að fara til Reykja­vík­ur og verða dóp­isti“

Hlynur Kristinn Rúnarsson og Tinna Guðrún stjórna hlaðvarsþættinum Það er …
Hlynur Kristinn Rúnarsson og Tinna Guðrún stjórna hlaðvarsþættinum Það er von.

Ung móðir sem er langt gengin með sitt þriðja barn er gestur hlaðvarpsþáttarins Það er von. Hún er aðstandandi, alin upp við mikinn alkóhólisma og hefur sjálf verið í bata frá fíknisjúkdómi í rúmlega þrjú ár. Konan kemur fram nafnlaus til þess að vernda elsta barnið sitt sem er sjö ára. Drengurinn á að baki mikla áfallasögu en báðir foreldrar hans glíma við fíknisjúkdóma, faðir hans er enn í virkri neyslu. 

Þessi unga móðir ólst upp við mikinn alkóhólisma sjálf, báðir foreldrar hennar voru alkóhólistar. „Ég hét mér því að verða aldrei eins og mamma mín, ætlaði mér aldrei að gera það og vildi miklu stærra og meira,“ segir hún í þættinum.

Aðstæður voru, eins og gefur að skilja, erfiðar og hún fór í fóstur sex ára gömul til ömmu sinnar og afa í litlu þorpi úti á landi. Hún upplifði öryggi þar og er það í síðasta skipti sem hún man eftir að hafa upplifað það sem barn. „Einn daginn, tveimur árum seinna, kom símtal og við áttum að flytja í bæinn til mömmu aftur.“ Hún, ásamt systkinum sínum, flutti í bæinn og þá byrjaði þetta „geimveru syndrome“ eins og það er oft kallað. „Ég þoldi ekki þennan stað, það var innprentað í mig þetta viðhorf barns alkóhólista, ég verð að fela mig, svo ég tengdist engum og vildi ekki bjóða neinum heim.“

Árið áður en konan fermdist fór hún í fyrsta sinn í heimsókn til pabba síns, mamma hennar lét sig hverfa svo hún þurfti að flytja til hans í þessari heimsókn. Hún lýsir höfnuninni en á sama tíma guðsgjöfinni sem stjúpmamma hennar er. Stjúpmamma hennar gerði sitt besta þegar hún fékk þrjá snarvitlausa unglinga í hendurnar, eins og hún orðar það.

Neyslusaga þessarar ungu konu byrjar helgina eftir fermingu, stjórnleysið gerir strax vart við sig. „Ég man móment á þorrablóti í þorpinu mínu, mamma var þar, ég var að verða 17 ára og ákvað að fara til Reykjavíkur og verða dópisti, ég var komin með nóg og passaði aldrei inn í.“

Neyslan varð um leið dagneysla og vatt upp á sig, þannig gekk það þar til hún var um tvítugt, þegar hún varð ólétt að syni sínum. Það átti að breyta öllu því hún ætlaði ekki að verða eins og mamma sín. „Hann hefur alltaf verið tilgangurinn minn, fíknin er bara svo ógeðslega sterk! Ég átti að búa í einbýlishúsi í litlu þorpi, sem mér var plantað í og rækta gras á meðan barnsfaðir minn sat inni, lengi. Ég gat það ekki svo ég lét pabba sækja mig og við bjuggum hjá honum þar til sonur minn var að verða tveggja ára.“

Á þeim tíma var henni úthlutað íbúð og það varð eins og blaðra sem sprakk. Neyslan þróaðist hratt. „Ég hafði alltaf þráð að vera mamma, en á sama tíma þráð að vera elskuð en var líka mjög veik. Ég faldi mig á bak við það að strákur sem ég var með var miklu verri en ég, í geðrofum og notaði efnin öðruvísi.“

Fyrsta sem hún gerir eftir að hún kemur úr meðferð, fyrir rúmlega þremur árum, er að hlúa að barninu sínu. „Hann var allt of lengi inni á heimilinu á meðan ég var í neyslu og hefur þurft að ganga í gegnum allt of mikið.“

Konan ræðir skólakerfið í hlaðvarpsþættinum og telur að skóli drengsins hafi vanrækt skyldur sínar. „Sonur minn fékk taugaáfall eftir að hann hitti pabba sinn, sem glímir við fíknisjúkdóm. Ég reyndi að útskýra fyrir honum að pabbi hans væri veikur þótt það sæist ekki, hann væri veikur í hjartanu og höfðinu sem gerði það að verkum að hann gæti ekki verið eins góður pabbi og hann ætti að vera. Hann hittir pabba sinn svo og hann segir barninu að hann sé veikur af því hann fái ekki að hitta hann. Sonur minn fékk taugaáfall í sturtunni eftir þetta.“

Ástandið sem þessi unga kona lifir í veldur mikilli streitu en þakkar hún seinni barnsföður sínum, vinkonum, fundum og Guði fyrir að hún sé edrú. „Á mestu vonleysistímunum hef ég hugsað að ef ég hefði fallið fimmtán sinnum á þessum tíma væri örugglega búið að gera eitthvað fyrir barnið mitt en af því ég er að standa mig þá er þetta sett til hliðar.“

Í þættinum ræðir konan einnig um hvernig fíknin verður sterkari en móðurástin, sterkari en allur vilji. Sonurinn er forgangsatriði og hún kennir ekki bara öðrum um heldur segist hún vera viljug til að læra og fá leiðsögn í uppeldinu. Kerfið, börn í áhættuhópi, viðhorf fólks, fallvaldar, líkamsímynd stelpna eftir meðferð og ýmislegt fleira er einnig meðal málefna. 

Hægt er að hlusta á Það er von á hlaðvarspvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál