Bætti á sig og viðmótið breyttist

Jessie Cave.
Jessie Cave. Skjáskot/Instagram

Rithöfundurinn Jessie Cave segist í viðtali við The Independent hafa upplifað breytt viðmóti gagnvart sér fyrir rúmum áratug við tökur á Harry Potter-myndunum eftir að útlit hennar tók breytingum á milli ára. 

Cave, sem lék í tveimur Harry Potter-kvikmyndum, Harry Potter og blendingsprinsinum og Harry Potter og dauðadjásnunum, segir að það hafi verið komið fram við sig eins og hún væri af „annarri tegund“ eftir að hafa þyngst á milli ára þegar hún mætti í tökur á seinni myndinni. 

Jessie Cave er lengst til hægri á myndinni.
Jessie Cave er lengst til hægri á myndinni. Skjáskot/Instagram

„Ég bætti verulega á mig eftir að hafa leikið í Harry Potter og blendingsprinsinum enda var ég ekkert að svelta mig, ég var að þroskast og fólk á það til að þyngjast þegar það eldist, það bara gerist og það gerðist hjá mér. Svo þegar ég mætti í tökur á seinni myndinni var komið fram við mig eins og ég væri af annarri tegund,“ sagði Cave.

Í dag starfar Jessie Cave sem rithöfundur og bók hennar Sunset situr í dag á toppi breska bóksölulistans í The Times.

View this post on Instagram

A post shared by JeSsIe CaVE (@jessiecave)

Frétt The Independent.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál