Fékk holskeflu af athugasemdum um holdafar

Tara Reid hefur augljóslega lagt svolítið af síðustu misseri.
Tara Reid hefur augljóslega lagt svolítið af síðustu misseri. Samsett mynd

Bandaríska leikkonan Tara Reid fékk á dögunum holskeflu af athugasemdum um holdafar sitt frá aðdáendum. Leikkonan birti af sér myndir á Instagram þar sem hún stillti sér upp á sundfötum og virðist hún hafa grennst allsvakalega. Page Six greindi fyrst frá. 

Áhyggjufullir aðdáendur létu skoðanir sínar um líkamsvöxt hennar í ljós og óttuðust það að hún væri að glíma við lystarstol. „Allt of mjó. Ég vona samt að það sé í lagi með þig,“ ritaði einn aðdáandi. „Hvað í fjandanum kom fyrir þig?“ skrifaði annar. „Borðaðu hamborgara. Þú verður að elska sjálfa þig meira. Þetta er ekki heilbrigt.“ Eru þetta aðeins lítil dæmi um athugasemdirnar sem skrifaðar voru við myndirnar. 

Gagnrýnin kom Reid á óvart og ákvað hún að svara þessum röddum. 

„Hér er önnur mynd frá því í gær til þess að sýna ykkur að ég er ekki of mjó. Ég er bara með mjög hröð líkamleg efnaskipti. Allir sem eru með hröð efnaskipti skilja að það er rosalega erfitt að þyngjast. Það eina sem ég geri er að borða,“ útskýrði leikkonan. Þá lét hún nokkur áhrifarík myllumerki fylgja færslunni sem fólu í sér ýmis skilaboð um náungakærleik.

View this post on Instagram

A post shared by Tara Reid (@tarareid)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál