Svo miklu meira breyttist en útlitið

Rebel Wilson í sumar.
Rebel Wilson í sumar. AFP

Hollywoodleikkonan Rebel Wilson ákvað að taka til í lífi sínu þegar hún fór að reyna að eignast barn fyrir einu og hálfu ári. Það kemur henni á óvart hversu góðum árangri hún hefur náð. Á meðan aðdáendurnir sjá árangurinn á útlitinu sér hún mælanlegan árangur í blóðprufum. 

„Ég léttist um 35 kíló,“ sagði Wilson en það sem meira er þá hefur heilsufar hennar batnað til muna. „Ég fór til læknis í árlega heilsufarsmælingu í síðustu viku og blóðprufurnar hafa aldrei verið betri,“ sagði Wilson í sjónvarpsþætti á dögunum. 

Henni líður líka betur eftir langan vinnudag. „Eftir langan vinnudag – við erum oft í tökum í 16 klukkutíma  var mér oft mjög illt í fótunum og þurfti í lok vinnudags að leggjast á gólfið með fæturna upp við sófann. Núna kemur það ekki fyrir.“

Áður en Wilson breytti um lífsstíl átti hún það til að borða yfir tilfinningar sínar. Hún hefur greint frá því að hún sé bæði stolt af sjálfri sér fyrir að lifa heilsusamlegra lífi en á sama tíma skilur hún áhuga fólks. 

Hér fyrir neðan má sjá viðtalið þar sem Wilson ræddi heilsufar sitt en ásamt því að taka heilsuna föstum tökum í fyrra ákvað hún að skrifa barnabók. 

Rebel Wilson er ánægð með lífið.
Rebel Wilson er ánægð með lífið. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál