Byrjaði að drekka meira í faraldrinum

Jennifer Garner.
Jennifer Garner. AFP

Hollywoodstjarnan Jennifer Garner byrjaði að drekka meira í kórónuveirufaraldrinum. Hún var ekki vön að detta í það þegar hún drakk en fékk sér oft lítið í einu. Í sumar ákvað hún að minnka áfengisneysluna og hætti að drekka í nokkrar vikur. 

„Ég drekk því eitthvað flest kvöld,“ sagði Garner í spjalli við leikkonuna Judy Greer á samfélagsmiðlinum Instagram. Garner drakk lítið þegar hún var unglingur og í menntaskóla en byrjaði að verðlauna sig með víni eftir að hún eignaðist börn með leikaranum Ben Affleck. Elsta barnið er 15 ára. 

„Ég fór að hugsa: ég drekk eitthvað smá á hverju kvöldi og sérstaklega í faraldrinum,“ sagði Garner. „Ég fæ mér hálft glas og hálfa glasið er kannski meira eins og fullt glas. Það eru sjö glös á viku og segjum að ég drekki tvö um helgar. Allt í einu er ég að drekka næstum því tíu glös af víni á viku.“

Alias-leikkonan ákvað að hætta að drekka í tíu vikur í sumar en svindlaði aðeins þegar hún fór í ferð til New York í september. Garner segist vera að endurhugsa samband sitt við vín. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál