Þetta borðar Amal Clooney alla daga

Amal Clooney er önnum kafinn lögmaður. Hún er móðir tvíbura …
Amal Clooney er önnum kafinn lögmaður. Hún er móðir tvíbura sem hún á með eiginmanni sínum leikaranum George Clooney.

Amal Clooney er 43 ára mannréttindalögfræðingur og lifir annasömu lífi með eiginmanni sínum George Clooney og tvíburum þeirra. Hún þarf því að huga að hollustunni til þess að viðhalda orkunni. Blaðamaður Hello Magazine fór á stúfana og safnaði saman öllum upplýsingum um hvað hún innbyrðir yfir daginn. 

Í heild má segja að Clooney aðhyllist miðjarðarhafsmataræði þar sem fiskur gegnir stóru hlutverki.

Clooney byrjar oftast daginn á heilsusamlegri þarasúpu ásamt soðnu eggi. Í hádeginu er oft blanda af pasta og prótíni. Til dæmis er oft á boðstólum salat, spagettí með kalkúnabollum eða þá kjúklingabringa með sítrónusósu.

Þá eru hjónin með einkakokk sem sér um að elda fyrir fjölskylduna fjölbreytta rétti. Það er pítsukvöld einu sinni í viku en oft eru líbanskir, indverskir og ítalskir réttir áberandi á matseðli fjölskyldunnar.

„Vivi eldar nánast á hverju kvöldi fyrir okkur þar sem við höfum tvíburana til að annast. Það er ekki jafn auðvelt að fara út að borða og áður. Svo vilja allir vinir okkar heldur borða matinn hennar Vivi en að fara á einhvern veitingastað.

En í alvöru, við Amal erum svo slæmir kokkar að hver kennslustund í eldhúsinu væri eins og að reyna að kenna hval að fljúga,“ sagði George Clooney um matreiðsluhæfileika þeirra hjóna.

Amal og George Clooney.
Amal og George Clooney. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál