Stjarnan úr Love Actually óþekkjanleg

Martine McCutcheon hefur grennst síðan hún lék í Love Actually.
Martine McCutcheon hefur grennst síðan hún lék í Love Actually. Samsett mynd

Leikkonan Martine McCutcheon varð heimsfræg fyrir hlutverk sitt sem hin ljúfa Natalie í jólamyndinni Love Actually. Þar lýstu sumir henni sem þybbinni sem átti alls ekki við hana. Hún hefur þó grennst töluvert síðan hún lék í myndinni sem kom út árið 2003. 

Aðdáendur McCutcheon hafa meðal annars biðlað til hennar að hætta að grennast að því er fram kemur á vef Daily Mail en hún er dugleg að birta myndir af sér á Instagram. Telja sumir að hin 45 ára gamla leikkona sé of grönn. 

Leikkonan byrjaði að starfa sem leikkona sem unglingur og hefur greint frá því að hún hafi alltaf verið meðvituð um holdafar sitt. Þegar hún var yngri hugsaði hún með sér að hún liti betur út fyrir framan myndavélina ef hún væri grönn og það auðveldaði starf stílista ef hún passaði í minni föt. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál