Benedikt fitaði sig um 10 kíló fyrir Verbúðina

Benedikt Erlingsson tíu kílóum þéttari en venjulega í hlutverki sínu …
Benedikt Erlingsson tíu kílóum þéttari en venjulega í hlutverki sínu í Verbúðinni sem sýnd er á RÚV á sunnudagskvöldum.

Leikarinn Benedikt Erlingsson fitaði sig um tíu kíló fyrir hlutverk sitt í Verbúðinni. Benedikt segir að hann sé engin eftirherma og því hafi hann þurfti að fara aðrar leiðir til þess að leika Steingrím Hermannsson heitinn í þáttunum.

Þegar hann er spurður hvernig hann hafi fitað sig segist hann hafa borðað meira og hreyft sig minna.

„Ég borðaði allt sem mér finnst best eins og rjómaís með rjóma. Súkkulaði og gott brauð frá Brauði og co. Svo borðaði ég mikið af kökum og drakk bjór og vín í öll mál. Þetta var hrikalegt tímabil og ekki fyrir hvern sem er,“ segir Benedikt.

Eftir að tökum lauk þurfti Benedikt að komast aftur í fyrra horf og losa sig við tíu kíló. Hann segir að það hafi ekki verið mjög flókið. Hann hætti að borða rjómaís og rjóma, hætti að borða bakarísmat frá Brauði og co og fór að hreyfa sig meira. Hann labbaði og labbaði og setti tappann í flöskuna.

„Það er náttúrlega miklu auðveldara fyrir mig að léttast en marga aðra því ég er svo ofboðslega massaður. Ég er í topp 24% af mössuðustu mönnum minnar kynslóðar samkvæmt rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar.“

Leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson.
Leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál