Dior og Technogym gera æfingatæki að stofustássi

Samstarf Technogym og Dior hefur vakið heimsathygli. Hér má sjá …
Samstarf Technogym og Dior hefur vakið heimsathygli. Hér má sjá æfingaboltann, æfingabekkinn og hlaupabrettið.

Ítalska háklassalíkamsræktartækjamerkið Technogym og franska tískuhúsið Dior hafa sameinað krafta sína með einstakri líkamsræktartækjalínu sem enginn þarf að skammast sín fyrir. Samstarfið var kynnt á dögunum og koma tækin í takmörkuðu upplagi.

Hér áður fyrr voru líkamsræktartæki eingöngu keypt inn á heimlið þegar fjölskyldumeðlimir vildu losna við aukakílóin eftir jólin eða sumarfríið þar sem bjórdrykkja og lakkrísát fór úr böndunum. Heima-líkamsræktartæki fortíðarinnar voru auk þess svo hryllilega útlítandi að það var ekki nokkur leið að hafa þau inni á heimilinu – hvað þá í stofunni. Þessi tæki voru geymd í geymslunni eða í bílskúrnum og fólk taldi sér trú um að það væri frábær hugmynd að svitna innan um rykfallnar jólaseríur og drasl sem enginn hafði ánægju af lengur.

Æfingabekkurinn er vel hannaður. Í honum eru öll þau lóð …
Æfingabekkurinn er vel hannaður. Í honum eru öll þau lóð sem venjuleg manneskja þarf til þess að geta lyft. Í bekknum eru líka bönd og dýna. Hægt er að skoða bekkinn nánar á technogym.is.

Í dag hefur orðið bylting í þessum efnum. Það eru ýmsar ástæður fyrir því. Heilt yfir er fólk orðið meðvitaðra um að dagleg hreyfing skiptir máli fyrir andlega og líkamlega heilsu. Síðustu ár hefur það færst í vöxt að fólk komi sér upp aðstöðu heima hjá sér til að hreyfa sig en eftir að veiran skall á hefur orðið sprenging í heimarækt. Fólk finnur að loftið fer fljótt úr blöðrunni ef það situr fyrir framan tölvu allan daginn í heimavinnu og hreyfir sig minna. Það að hafa almennilega aðstöðu heima hjá sér skiptir raunverulegu máli þegar heilsan er annars vegar. Pjattrófur þessa heims eru þó alls ekki á því að heimarækt þurfi að vera óaðlaðandi og nútímafólk veit að það þýðir ekkert að loka fólk inni í geymslum og ætlast til þess að það lifi til fulls á meðan það svitnar innan um gömul fótanuddtæki og rykfallið jólaskraut.

Ítalska líkamsræktarmerkið Technogym er búið að fatta þetta. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í hönnun á líkamsræktartækjum, bæði fyrir líkamsræktarstöðvar og fyrir einstaklinga, síðan 1985 þegar fyrsta línan kom á markað. Tækin hafa notið vinsælda því þau eru vönduð og endingargóð. Á dögunum fóru Technogym og franska tískuhúsið Dior í samstarf og úr varð líkamsræktarlína sem færir heimaræktina upp á efsta stig smartheitaskalans. Dior á langa sögu en merkið kom á markað 1946 og umturnaði tískuheiminum á þessum tíma og líka hugmyndum kvenna um klæðaburð og lekkerheit. En það er önnur saga. Síðan Dior kom á markað hefur það átt sínar upp- og niðursveiflur en um þessar mundir er uppsveiflan mikil. Fólk með stíl þráir Dior. Það er því ekki ólíklegt að Dior-dýrkendur þessa heims muni ná hámarkspúlsi við það eitt að sjá myndirnar af þessum líkamsræktartækjum.

Boltinn er mjög sniðugt æfingatæki.
Boltinn er mjög sniðugt æfingatæki.

Þessi lína kemur í takmörkuðu upplagi en í henni eru hlaupabretti, æfingabolti og fjölnota æfingabekkur, sem hefur slegið í gegn í hefðbundinni útgáfu en sprengir skalann þegar hann er kominn í Dior-umbúðir.

Ef fólk ætti þennan búnað heima hjá sér þyrfti enginn að svitna innan um gamalt jólaskraut heldur væru þessi tæki á besta stað í stofu. Þannig væri hægt að sameina heilsurækt og vellíðan og auka hamingju um mörg prósent. Er það ekki einmitt það sem fólk er alltaf að rembast við að gera en gengur misvel eins og með svo margt í lífinu?

Hlaupabrettið er eitursvalt eins og sést á myndinni.
Hlaupabrettið er eitursvalt eins og sést á myndinni.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál