Morgunrútína Jennifer Lopez

Jennifer Lopez hugsar vel um húðina og andlega heilsu.
Jennifer Lopez hugsar vel um húðina og andlega heilsu. AFP/ VALERIE MACON

Hollywoodstjarnan Jennifer Lopez veit að það er mikilvægt að byrja morguninn á réttan hátt. Hún deildi morgunrútínunni sinni með aðdáendum sínum en hvatningarorð og sólarvörn spila stóran þátt í morgunrútínu Lopez. 

Stjarnan byrjar ekki daginn á því að hlaupa út á náttfötunum með kaffibollann í annarri hendinni og símann í hinni. Nei, hún tekur daginn snemma og hugsar bæði um húð og andlega líðan. Hún byrjar á því að fara í sturtu og að bera á sig krem. 

„Rétt fyrir utan sturtuna mína er ég með kassa með litlum spjöldum með hvatningarorðum á,“ sagði Lopez á Instagram. Hún las síðan spjald að handahófi sem var speki eftir rithöfundinn og baráttukonuna Helen Keller. Spekin snérist um að taka ábyrgð á eigin hamingju og velgengi. Lopez sagðist ætla að reyna að fara eftir spakmæli Keller. 

Jennifer Lopez.
Jennifer Lopez. AFP/Matt Winkelmeyer

Lopez segist ekki fara í símann strax á morgnana. „Ég næri sálina mína með hvatningarorðum, ég skoða ekki símann minn strax,“ segir Lopez sem leggur áherslu á jákvæðni. 

Stjarnan hreinsar húðina í morgunsturtunni og ber síðan á sig andlitsserum, sólarvörn og augnkrem. Hún segir sólarvörn hafa bjargað húðinni. Hún hefur verið dugleg að nota sólarvörn síðan hún var ung. Hún gerði það líka þegar sólin skein ekki í New York. Þessi venja hefur margborgað sig. 

View this post on Instagram

A post shared by Jennifer Lopez (@jlo)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál