Hefur ekki drukkið í ár

Chrissy Teigen er að velja áfengislausan lífstíl
Chrissy Teigen er að velja áfengislausan lífstíl AFP/VakerieMacon

Fyrirsætan og rithöfundurinn Chrissy Teigen fagnar því að vera áfengislaus í eitt ár. Hún segist stundum sakna þess að líða eins og hún sé dofin og áhyggjulaus. Hins vegar hafi áfengi ekki látið henni líða vel þegar leið á. 

„Ég drakk til þess að losna við mikinn kvíða, en ég losnaði nánast alveg við hann þegar ég hætti að drekka áfengi. Mér líður vel en verð oft pirruð yfir því hvað ég man lítið af því ég var svo oft full,“ skrifaði Teigen á Instagram

Chrissy Teigen og John Legend tóku börnin með á Grammy-verðlaunin.
Chrissy Teigen og John Legend tóku börnin með á Grammy-verðlaunin. AFP

Teigen sagði að áfengisneysla hennar í gegnum árin hafi valdið því að hún man ekki eftir mikilvægum augnablikum í lífi sínu. Til dæmis sagðist hún vilja óska þess að hún gæti munað eftir einni verðlaunahátíð sem hún hefur farið á. Hún lýsti því líka hvernig eitt sinn hafi hún fengið kokk heim til sín til þess að kenna henni og vinkonum hennar að elda ákveðinn rétt, í miðri kennslustund hafi hún hins vegar sofnað vegna áfengisneyslu.

„Til að vera alveg hreinskilin veit ég ekki hvort ég drekki aftur en ég veit að ég vil ekki vera þessi einstaklingur aftur,“ segir Teigen sem er ánægð með áfangann sem hún hefur náð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál