Ólympíuskíðakonan Lindsay Vonn opnaði sig á dögunum um áratuga baráttu við svefnleysi (e. insomnia) sem hún segir hafa stafað af miklum kvíða. Svefnvandamál Vonn hófust eftir að hún fór í sína fyrstu aðgerð á hné árið 2013.
Vonn er ein farsælasta skíðakona allra tíma og hefur unnið til þriggja Ólympíuverðlauna og á fjóra heimsmeistaratitla að baki á glæstum ferli sínum. Þrátt fyrir velgengni hennar glímdi hún við alvarleg svefnvandamál allan ólympíuferil sinn, en svefnleysið byrjaði vegna mikilla verkja sem hún upplifði eftir hnéaðgerðina og í kjölfarið upplifði hún mikinn kvíða sem jók svefnvandann.
„Sem íþróttamaður veistu hversu mikilvægur svefn er. Ég lá uppi í rúmi eftir aðgerðina með mikla verki og reyndi að sofa, en ég gat það ekki. Kvíðinn sem fylgdi því kom mér á slæman stað þar sem ég var ítrekað svefnlaus,“ sagði Vonn í samtali við Today.