Rúmfastur svo mánuðum skipti aðeins 19 ára gamall

Matti Ósvald er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar.
Matti Ósvald er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar.

Matti Ósvald heilsufræðingur og markþjálfi fann ástríðuna eftir að hafa lent í slysi sem olli því að hann var rúmliggjandi mánuðum saman aðeins 19 ára gamall.

Matti, sem er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar, segir að sitt stærsta högg hafi á margan hátt endað sem hans stærsta blessun.

„Ég hef alla tíð haft áhuga á að vita hvernig fólk virkar og hvaðan við komum. Alveg frá því að ég var barn var ég að lesa bækur af forvitni um alls kyns málefni. En svo er það í raun og veru slys eða alvarleg meiðsli sem verða til þess að ég fer alla leið í að skoða heildræna heilsu og leiðir til að hámarka sjálfan sig. Ég var að spila körfubolta 19 ára gamall og fæ ofan á mig annan leikmann og svo vakna ég bara einn morguninn í vinkil og get ekki gengið eða gert eðlilega hluti. Ég gat ekki farið á salernið og leið eins og ég væri með rýting í bakinu. Til að gera langa sögu stutta þá fór ég til 3 sérfræðinga og þeir sögðu mér á endanum að ég ætti ekki að gera mér miklar vonir um að stunda aftur íþróttir. Það eina sem ég gæti gert væri að liggja í rúminu í mánuð og sjá hvort að líkaminn geti gert eitthvað til að laga þetta. Það var auðvitað rosalegt sjokk fyrir ungan íþróttastrák að fá þessar fréttir. En ég sé núna að líf mitt tók í raun nýja stefnu eftir þetta. Ég þurfti að kafa djúpt og lesa mér til um allt sem til var um heilsu til að koma mér aftur til baka. Það var 12 mánaða tímabil þar sem ég þurfti að taka hvíld frá skóla og öllu og var í raun meira og minna rúmfastur. En ég komst á endanum út úr þessu tímabili og spila meira að segja ennþá körfubolta í dag.“

Þörf á að fólk læri að elska sjálft sig

Matti hefur í gegnum árin unnið með mikinn fjölda fólks, sem heilsufræðingur, markþjálfi og nuddari og er því með góða mynd af því sem helst plagar fólk í nútímanum.

„Auðvitað eru þessir hefðbundnu hlutir eins og streita, slæmt matarræði, hreyfingarleysi og of lítill svefn að hafa slæm áhrif. En svo eru líka aðrir hlutir sem hafa mikil áhrif. Þessi stanslausi samanburður er klárlega eitt af því sem er að valda fólki hve mestri vanlíðan. Við erum stanslaust að bera okkur saman við glansmyndir af öðrum og það býr til niðurrif. Í staðinn ættum við að einbeita okkur á að horfa inn og átta okkur á því góða í okkur sjálfum. Í raun er samanburður á margan hátt rótin að sorg. Það þurfa ekkert allir að hugleiða eða þess háttar, en bara finna leiðir til að bæta sjálfsvirði sitt. Það er mjög margt gott og skemmtilegt við samfélagsmiðlana og símana, en við verðum að minnka þennan stanslausa samanburð og þörf á viðurkenningu í gegnum samfélagsmiðla. Það mun aldrei skila okkur varanlegri hamingju. Ég held að það sé orðin mikil þörf á að fólk læri að elska sjálft sig og það er á margan hátt fyrsta skrefið í að bæta aðra hluti. Sá sem á í brjáluðu ástarsambandi við sjálfan sig mun vilja hlúa vel að sér.“

Dauðinn langbesti kennarinn

Matti segir í þættinum frá því þegar hann upplifði óvart sína eigin jarðaför og hvernig það hafði mikil áhrif á hugarfar hans og breytti honum varanlega.

„Dauðinn er langbesti kennarinn okkar, af því að hann tekur af borðinu allt sem ekki skiptir máli. Það var í jarðarförinni hjá afa mínum og alnafna, Matta Ósvald, sem ég varð fyrir magnaðri reynslu sem hjálpaði mér að skilja þetta fyrir alvöru. Afi var orðinn 98 ára gamall þegar hann fór og var kraftmikill maður og mikil fyrirmynd. Ég labbaði inn í kirkjuna eftir kistulagninguna til að hugga lítinn strák sem var grátandi þegar athöfnin var búin. Ég var að segja honum að afi hafi í raun verið sáttur við að fara þegar mér er litið upp og ég sé hvíta kistu, Keflavíkurmerkið og merki Víkings í Ólafsvík og svo nafnið mitt á öllum krönsunum.

Mér brá í 3-4 sekúndur, en svo kom yfir mig mikill friður. Ég áttaði mig á því að svona yrði þetta einn daginn fyrir mig og sá í raun mína eigin jarðarför. Það var eins og ég fengi gríðarlega sterk skilaboð um að það eina sem skipti máli væri hvernig ég ætlaði að lifa þangað til að dagurinn kæmi þar sem nafnið mitt yrði aftur á sama stað í kirkjunni og minn dagur væri kominn. Þegar það gerist mun fólk halda áfram að fara í búðina og kaupa kaffi daginn eftir. Það er mikilvægt að horfast í augu við það að dauðinn mun banka upp á einn daginn og þá mun lífið halda áfram hjá hinum. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa þetta og sjá þetta svona skýrt.“

Þáttinn með Matta og alla aðra þætti Sölva Tryggvasonar má nálgast inni á vef þáttanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál