Af hverju er svona erfitt að losna við svepp?

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands.
Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Ljósmynd/Helgi Ómars

Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu er varðar langtímaafleiðingar af svepp á nöglum á fæti.

Góðan dag,

Hverjar eru langtímaafleiðingar af svepp á nöglum á fæti? Virka þessi lyf sem eru í boði, eins og Nailner frá Alvotech? Af hverju er svona erfitt að losna við sveppinn? Ég hef reynt margt, lyf, lökk, en hann kemur aftur og aftur.

Kveðja og takk fyrir,

G.

Sæl

Af hverju fær fólk sveppasýkingar?

Á húð okk­ar lifa millj­ón­ir bakt­ería og sveppa í sátt og sam­lyndi við okk­ur. Yf­ir­leitt valda þess­ar ör­ver­ur eng­um skaða, en geta þó fjölgað sér úr hófi og þá farið að valda ein­kenn­um. Dæmi um þetta eru fót­svepp­ir, sem eru með al­geng­ustu sýk­ing­um sem koma fyr­ir hjá mann­fólki. Ef álag er á húðinni og það mynd­ast sár eða sprung­ur eiga svepp­irn­ir greiðari leið með að valda sýk­ingu. Fólk er samt sem áður mis­mót­tæki­legt fyr­ir að sýkj­ast og þótt einn ein­stak­ling­ur í fjöl­skyldu sé með fót­sveppi er ekki víst að all­ir fjöl­skyldumeðlim­ir séu smitaðir, þótt áhætt­an sé vissu­lega meiri. 

Sveppir þrífast best í hita og raka, enda eru sveppasýkingar á fótum algengar hjá íþróttafólki, þeim sem stunda mikið sund og fólki sem gengur í þéttum, lokuðum skóm. Sveppasýkingar smitast annaðhvort við beina snertingu sýkts svæðis eða við snertingu hlutar sem inniheldur húðfrumur með sveppum t.d. skór, sokkar, sturtubotnar, búningsherbergi og umhverfi sundlauga.

Rannsóknir sýna að fótsveppir eru gríðarlega algengir og íslensk rannsókn sýndi að 42% karla og 35% kvenna eru sýkt. Naglsveppir eru algengari hjá eldra fólki og fólki sem hefur verið með langvarandi fótsveppi og skaðaðar neglur eru einnig móttækilegri fyrir að sýkjast. Fótsveppir koma oft aftur þó að meðferð skili árangri og þess vegna er mikilvægt að hafa fyrirbyggjandi meðferðir í huga til að forðast endursmit. 

Yfirleitt byrja húðeinkenni fyrst og síðan kemur smit í táneglur og til að fyrirbyggja naglsveppi er mikilvægt að meðhöndla húðeinkennin sem fyrst. Oft er sýking bæði í nöglum og húð en algengara er að um sé bara að ræða annan fótinn. Margir finna einkennandi táfýlu af sveppasýktum fótum.

Til eru 3 megineinkenni fótsveppa:  

  • Klæjandi, flagnandi, „soðnar“ rauðar eða hvítar breytingar milli tánna og þá helst milli fjórðu og fimmtu táar.
  • Hreistur sem nær yfir alla ilina og jafnvel upp á ristina, gjarnan með sprungum á hælum og við tær.
  • Blöðrumyndun og bólgin vessandi sár, þá yfirleitt á innri hluta iljar.

Algengast er að stóra tánöglin sýkist

Táneglur sem eru sýktar með svepp eru gjarnan þykkar og með litabreytingum. Oftast sést gul eða hvít litabreyting en stundum brún eða rauð. Stundum verða sveppasýktar neglur lausar og geta jafnvel dottið af. Algengast er að stóra tánöglin sýkist.

Hvaða meðferðir er hægt að nota við sveppasýkingu í nöglum?

Ef meðferð er hafin snemma er oftast hægt að ráða við sveppasýkinguna með kremum sem fást án lyfseðils í apótekum. Þetta á þó ekki við um naglsveppi nema að sýkingin sé fremst í nöglinni, en ekki komin niður í naglrótina. Ef sýkingin er fremst í nöglunum getur meðferð með naglalakki sem inniheldur amorolfin hjálpað til og þá er það borið á neglurnar x2 í viku í minnst 6 mánuði. Fæst í öllum apótekum. Ef sýkingin hverfur ekki eða kominn er naglsveppur niður í naglrótina þarf að fá aðstoð heimilislæknis eða húðlæknis.

Yfirleitt eru notaðar Terbinafin-töflur en sú meðferð getur tekið 3-4 mánuði eða lengur. Við meðferð naglsveppa er mikilvægt að klippa reglulega sýktu neglurnar eins stutt og hægt er. Einnig er gott að þjala þær niður ef þær eru þykkar. Þetta flýtir fyrir að meðferðin skili árangri.

Almennt virka meðferðirnar vel en endursmit er algengt og því nauðsynlegt að huga að fyrirbyggjandi aðgerðum:

  1. Haltu fótunum hreinum og þurrkaðu vel milli táa eftir sturtu- og baðferðir
  2. Þvoðu handklæði eftir hverja notkun á 60°C hita því að sveppir lifa af við lægri hita
  3. Skiptu um sokka daglega og notaðu helst bómullarsokka sem má þvo á 60°C hita
  4. Þrífðu reglulega sturtubotninn og baðkarið
  5. Vertu í skóm sem lofta vel um fæturna og forðastu að vera lengi í heitum, lokuðum skóm
  6. Skiptu um skó daglega þannig að þeir nái að þorna vel á milli notkunar og skiptu út gömlum íþróttaskóm eða skóm sem lykta illa
  7. Notaðu baðtöfflur í búningsklefum og sturtum sundlauga og íþróttahúsa
  8. Notaðu púður sem dregur í sig raka á fæturnar eða sveppadrepandi púður (pevaryl púður). Þetta á sérstaklega við um fólk sem fær endurteknar sýkingar
  9. Notaðu Lamisil krem 1x í viku í fyrirbyggjandi skyni ef fótsveppirnir eru mjög þrálátir og endurteknir.

Kær kveðja,

Jenna Huld Ey­steins­dótt­ir húðlækn­ir.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Jennu Huld spurningu HÉR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda