Þetta er pítsan sem þú verður að prófa

Í hinum fullkomna heimi myndi hvert heimili nota allan þann mat sem keyptur er inn og matarsóun væri sama sem engin. Í tilefni af Heilsudögum Nettó útbjó ég heilsusamlega hollustupítsu þar sem engin matarsóun á sér stað því sósan úr rétti gærdagsins er notuð sem pítsusósa. 

Vinkona mín kenndi mér að útbúa þessa hveitikímköku sem er í hlutverki pítsabotns. Þessi hveitikímkaka er reyndar mjög góð með smjöri og osti eða hummus en hún verður ennþá betri þegar hún er komin í félagsskap eggaldin-sósu, fetaosts og súrkáls svo eitthvað sé nefnt. 

Pítsabotn

60 hveítikím

3/4 dl vatn

Salt eftir smekk

Hveitikímið og vatnið er hrært saman og sett á bökunarplötu, saltað og bakað í 20 mínútur. 

Þegar botninn er tilbúinn er eggaldin-sósan sett ofan á. Hún getur bæði verið heit eða köld, fer eftir smekk. 

Svo raðar þú þínu uppáhaldsgrænmeti ofan á pítsuna. Á þessa pítsu er lífrænt kál frá Vaxa, lífrænar paprikur frá Ängla­mark, kirsuberjatómatar og íslenskur hreinn fetaostur. Það er sniðugt að stappa hann aðeins í lítilli skál og setja lífræna ólífuolíu yfir og salta hann áður hann fer á pítsuna. 

Að lokum er ein matskeið af súrkáli sett yfir. Bæði til að auka hollustuna en líka til að fá fallega litapallettu á diskinn. Það skiptir svo miklu máli að borða fallegan mat! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál