Litakort speglast í hagtölum

Baðherbergi með Blanco Paloma-steini sem hannað var af Hönnu Stínu.
Baðherbergi með Blanco Paloma-steini sem hannað var af Hönnu Stínu. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Ítalska fyrirtækið Quarella, sem framleitt hefur kvartsborðplötuefni og flísar í meira en 40 ár, fór yfir litakort síðustu áratuga í tilefni af afmæli sínu og bar þau saman við hagtölur á hverju markaðssvæði fyrir sig. Þá kom í ljós að í uppsveiflu voru svartir, hvítir og gráir tónar meira áberandi í gegnum tíðina en í niðursveiflu voru jarðlitir og beigelitir meira keyptir,“ segir Hörður Hermannsson hjá steinsmiðjunni Fígaró náttúrusteini. Þegar hann er spurður hvort litakort og hagtölur haldist í hendur á íslenskum markaði segir hann svo vera. „Í dag er fólk meira í jarðlitum og mattari tónum en fyrir nokkrum árum.“

Aðspurður hvað sé heitast í borðplötum í dag nefnir hann Blanco Paloma-steininn sem er ljós kvartssteinn og mjög sterkur. Líflegir en hlýir litir eiga meiri hljómgrunn nú en áður en svart granít er þó sígilt.

Í erlendum húsbúnaðarblöðum og bloggi virðist marmari vera að sækja í sig veðrið. Þegar Hörður er spurður hvort marmarinn sé vinsæll á Íslandi segist hann finna fyrir verulega auknum áhuga. „Fólk er meira að sækjast eftir mýkt og hlýju í dag sem marmarinn skilar svo vel. Það hefur reyndar ekki verið hægt að nota allan marmara í eldhús því efnið þolir sýrustig misvel. Við mælum með því að allur náttúrusteinn sé varinn með AKEMI-steinvörn sem gengur inn í steininn og myndar ekki filmu á hann. Þetta einfaldar öll þrif og viðhald steinsins.“

Spurður um áferð segir hann að mött áferð sé að koma nokkuð sterk inn í staðinn fyrir háglansandi stein. „Í dag er fólk opnara fyrir hlýleika og náttúrulegri litum,“ segir Hörður.

HÉR er hægt að skoða náttúrusteininn nánar.

Hörður Hermannsson.
Hörður Hermannsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Steinn á vegg frá Fígaró.
Steinn á vegg frá Fígaró. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Eldhús með Blanco Paloma-steini. Eldhúsið var hannað af Hönnu Stínu.
Eldhús með Blanco Paloma-steini. Eldhúsið var hannað af Hönnu Stínu. Ljósmynd/Gunnar Sverrison
Basalt frá Fígaró.
Basalt frá Fígaró. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Náttúrusteinn frá Fígaró með lýsingu á bak við. Þetta er …
Náttúrusteinn frá Fígaró með lýsingu á bak við. Þetta er stórkostlegt. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Veggklæðning úr náttúrusteini.
Veggklæðning úr náttúrusteini. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál