Sigga Heimis iðnhönnuður var ein af þeim sem fengu það verkefni að hanna herbergi á Sinnum heimaþjónustu sem er í gamla nunnuklaustrinu í Garðabæ. Sigga Heimis fékk 300.000 krónur til að gera herbergið vistlegt. Auk þess lagði Vogue til gluggatjöld og IKEA lagði sitt af mörkum til að þetta heppnaðist sem best.