Við Ólafsgeisla í Grafarholti er glæsileg 199 fm íbúð sem stendur í húsi sem byggt var 2002. Um er að ræða afar smekklega íbúð þar sem vandað hefur verið til verks.
Eldhúsið er opið inn í stofu með frekar óeldhúslegri innréttingu. Í eldhúsinu er stór eyja en innréttingin sjálf er hvít sprautulökkuð. Tækin eru frá SMEG og stór gaseldavél.
Íbúðin er vel búin góðum húsgögnum sem er smekklega komið fyrir í íbúðinni. Hver hlutur á sinn stað og nostrað við hvert smáatriði.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.