Svona búa breskir milljarðamæringar

Brian Wade eyddi fjórum árum í að hanna sjö hæða …
Brian Wade eyddi fjórum árum í að hanna sjö hæða glæsihýsi. Skjáskot Daily Mail

Húsnæði í London er með því dýrasta á heimsvísu, sér í lagi í hverfunum Mayfair, Belgravia, Kensington eða Chelsea. Fyrir marga auðkýfinga er þó ekki nóg að festa kaup á íbúð, eða húsi á svæðinu, heldur þarf að innrétta híbýlin eftir kúnstarinnar reglum.

Auðkýfingar leita því oft á náðir innanhússhönnuða, en einn slíkur er Brian Wade sem hefur varið síðustu fjórum árum í að hanna sjö hæða glæsihýsi fyrir rússneska fjölskyldu. Í húsinu er að finna sánu, níu baðherbergi og glerlyftu, en ein hæðin er ætluð fyrir þjónustufólk.

Átta ára dóttir eigendanna er með eigið baðherbergi, sem og fataherbergi. Móðir hennar er einnig með fataherbergi, sem samsvara heilli íbúð að stærð þar sem hún geymir fata- og töskusafnið sitt, sem og 600 pör af skóm.

Wade segir að virði húsgagnanna sem prýða heimilið sé 1,9 milljónir punda, eða rúmlega 333 milljónir íslenskra króna.

Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail.

Stofuborðið er, meðal annars, búið til úr 40 stingskötum en …
Stofuborðið er, meðal annars, búið til úr 40 stingskötum en í stofunni er einnig að finna perluskreyttan púða sem saumaður er úr gömlum kjól Hollywood leikkonu. Skjáskot Daily Mail
Ljósakrónan kostaði 185.000 pund, sem samsvarar tæpum 32,5 milljónum íslenskra …
Ljósakrónan kostaði 185.000 pund, sem samsvarar tæpum 32,5 milljónum íslenskra króna, enda eru laufblöðin úr skíragulli. Skjáskot Daily Mail
Tækin í líkamsræktarsalnum voru framleidd til að henta hæð fjölskyldumeðlima.
Tækin í líkamsræktarsalnum voru framleidd til að henta hæð fjölskyldumeðlima. Skjáskot Daily Mail
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál