Knútur Signarsson og Kristín Waage hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt við Vesturbrún á sölu. Garðurinn í kringum húsið er sérstaklega fallegur.
Húsið er 259 fm að stærð og var byggt 1983 og hannað af Halldóri Gíslasyni. Knútur og Kristín hafa búið í húsinu frá byggingu þess og er það smekklega innréttað. Í eldhúsinu er hvít innrétting með marmara á milli skápa en annars eru innihurðar og skápar úr eik.
Fasteignamat hússins er rúmar 70 milljónir en ásett verð er 119 milljónir.