Sesselja Thorberg, sem rekur fyrirtækið Fröken Fix, hefur sett sína glæsilegu íbúð á sölu. Íbúðin er öll máluð upp úr litakorti Fröken Fix í Slippfélaginu. Mildir og fallegir litatónar mæta hlýlegum húsgögnum á heimili smekkkonunnar Sesselju!
Eldhúsið er með hvítri sprautulakkaðri innréttingu og eru fallegar flísar á veggjunum. Eldhúsið sjálft er málað í lavender-lit sem skapar hlýleika og notalegheit. Í íbúðinni er hugsað út í hvert einasta smáatriði og allt gert til þess að heimilisfólkinu líði sem best.