Þetta guðdómlega fallega heimili stendur við Freyjugötu í Reykjavík. Það er búið fallegum húsgögnum og fá bjartir litir að njóta sín í íbúðinni. Í eldhúsinu eru veggirnir gulir sem kemur vel út á móti hvítri innréttingu.
Um er að ræða 89 fm íbúð sem er í húsi sem byggt var 1932. Íbúðin er í Þingholtunum sem búa yfir mikilli sögu og menningu.